Ljúf­feng­ar skons­ur með smá sítrus og heima­gerðri jarðarberja­sultu

Skons­ur

  • 420 g hveiti
  • 1 kúpt msk. lyfti­duft
  • 1 tsk. salt
  • 1-2 msk. syk­ur
  • Börk­ur af ½ app­el­sínu
  • 100 g kalt smjör (skorið í bita)
  • 220 g súr­mjólk
  • 1 egg
  • Smá mjólk til að pensla með
  • Smá hrá­syk­ur til að strá yfir

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofn­inn í 200°C.
  2. Finnið til miðlungs­stóra skál og setjið syk­ur og app­el­sínu­börk­inn í skál­ina.
  3. Nuddið sam­an þar til syk­ur­inn hef­ur tekið smá app­el­sínu­gul­an lit og leggið til hliðar.
  4. Setjið hveiti, lyfti­duft, smjör og salt í mat­vinnslu­vél. Kveikið á vél­inni og brytjið smjörið í minni bita þar til að bland­an lík­ist sandi, með nokkr­um aðeins stærri bit­um af smjöri.
  5. Það er líka hægt að gera þetta með hönd­un­um og nudda smjör­inu við hveitið ef vill.
  6. Bætið síðan hveiti/​smjör­blönd­unni sam­an við syk­ur­blönd­una og blandið vel sam­an.
  7. Hellið síðan súr­mjólk­inni út í og bætið egg­inu sam­an við og hrærið svo með sleikju þar til að allt kem­ur nokk­urn veg­inn sam­an, passið samt að hræra ekki of mikið.
  8. Setjið deigið út á borð og hnoðið allt var­lega sam­an í stóra sjúskaða kúlu.
  9. Fletjið út í u.þ.b. 3 cm þykkt deig og stimplið út skons­ur með 6-8 cm hring­laga formi.
  10. Raðið á bök­un­ar­plötu og penslið með mjólk og stráið smá hrá­sykri ofan á.
  11. Bakið við 210°C í 12 mín­út­ur.

Jarðarberja­sulta

  • 600 g jarðarber (fersk eða fros­in)
  • 200 g syk­ur
  • Safi úr ½ -1 sítr­ónu

Aðferð:

  1. Ef það eru notuð fersk jarðarber í sult­una þá er gott að skera þau í minni bita.
  2. Setjið ann­ars allt sam­an í miðlungs­stór­an pott og hitið sam­an við miðlungs­hita.
  3. Hrærið allt vel sam­an og vaktið pott­inn vel, um leið og syk­ur­inn hef­ur bráðnað hrærið þá stöðugt í blönd­unni og látið koma upp smá suðu.
  4. Látið allt malla á væg­um hita í u.þ.b. 10 mín­út­ur.
  5. Hrærið stöðugt.
  6. Þegar bland­an er orðin aðeins þykk­ari er gott að taka smá af sult­unni með kaldri skeið eða setja á kald­an disk og láta standa í smá­stund til að sjá áferðina á sult­unni þegar hún kóln­ar.
  7. Þá sjáið þið hvort það þarf að elda hana leng­ur til að gera hana þykk­ari eður ei.
  8. Þegar bland­an er orðin eins þykk og þið viljið hafa hana er gott að færa hana yfir í annað ílát sem þolir hita og leyfa að kólna við stofu­hita, geymið síðan inni í ís­skáp þar til skons­urn­ar verða born­ar fram.
  9. Hægt er að gera sult­una fyr­ir fram og eiga hana til í ís­skápn­um.

 

PRUFA með checkbox

Aðferð:

  Byrjið á því að hita ofn­inn í 200°C.

  Finnið til miðlungs­stóra skál og setjið syk­ur og app­el­sínu­börk­inn í skál­ina.

  Nuddið sam­an þar til syk­ur­inn hef­ur tekið smá app­el­sínu­gul­an lit og leggið til hliðar.

  Setjið hveiti, lyfti­duft, smjör og salt í mat­vinnslu­vél. Kveikið á vél­inni og brytjið smjörið í minni bita þar til að bland­an lík­ist sandi, með nokkr­um aðeins stærri bit­um af smjöri.

  Það er líka hægt að gera þetta með hönd­un­um og nudda smjör­inu við hveitið ef vill.

  Bætið síðan hveiti/​smjör­blönd­unni sam­an við syk­ur­blönd­una og blandið vel sam­an.

  Hellið síðan súr­mjólk­inni út í og bætið egg­inu sam­an við og hrærið svo með sleikju þar til að allt kem­ur nokk­urn veg­inn sam­an, passið samt að hræra ekki of mikið.

  Setjið deigið út á borð og hnoðið allt var­lega sam­an í stóra sjúskaða kúlu.

  Fletjið út í u.þ.b. 3 cm þykkt deig og stimplið út skons­ur með 6-8 cm hring­laga formi.

  Raðið á bök­un­ar­plötu og penslið með mjólk og stráið smá hrá­sykri ofan á.

  Bakið við 210°C í 12 mín­út­ur.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)