Súkkulaði Snúðar

Snúða deig:

  • 450 g. Hveiti
  • 1 pakki þurrger (1 ½ tsk)
  • 80 g sykur
  • ½ tsk salt
  • 100 g smjör
  • 220 g mjólk við stofuhita
  • 1 egg

Súkkulaði fylling:

  • 1 plata Síríus Barón súkkulaði 56% (150 g)
  • 120g smjör
  • 105g flórsykur
  • 42g kakó
  • 40 g rjómi

Samsetning:

  • Flórsykur til að strá ofan á

Aðferðir

Snúða deig:

  • Í stórri skál blandið saman hveiti, sykur og þurrger með písk. Setjið svo smjör og mjólk í sömu skál og hnoðið í hrærivél í míntútu. Blandið síðan saman við eggi og salti á meðan hrærivélinni gengur og hnoðið í u.þ.b 10 mín.
  • Leggið síðan yfir viskastykki eða plastfilmu og látið hefast í 30-60 mín við stofuhita eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
  • Á meðan deigið er í hefun er sniðugt að gera súkkulaði fyllinguna.

Súkkulaði fylling:

  • Bræðið allt saman í potti og gætið þess að ekkert brenni í botninum með því að hræra stöðugt, leyfið síðan fyllingunni að kólna í smá stund.

Samsetning:

  • Stráið hveiti á vinnu borðið og fletjið út deigið í stóran ferhyrning með kökukefli. Smyrjið síðan súkkulaði blöndunni yfir allt deigið. Brjótið síðan upp hliðarnar eina í einu af deiginu þannig að þrjú lög af deigi er staflað ofan á hvort annað.
  • Fletjið deigið aðeins út til að jafna allt. Notið síðan pizza skera til að skera nokkrar lengjur úr deiginu og rúllið þeim upp eins og í snúðaform.
  • Leggið snúðana á bökunarplötu með bökunar pappír of hefið við stofuhita með plastfilmu ofan á í 30-50 mín eða þar til að þeir hafa púffast töluvert upp.
  • Bakið síðan á 190°c í 12-16 mínútur.
  • Leyfið rétt svo að kólna og stráið smá flórsykri ofan á og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)