Hráefni:
- 170 g smjör
- 100 g púðursykur
- 50 g sykur
- 1 egg
- 1 eggjarauða
- 2 tsk vanillupaste/dropar
- 250 g hveiti
- 1/2 tsk liftiduft
- 1/2 tsk salt
- 100 g saxað Siríus Suðusúkkulaði
- 100 g heslihnetur
Aðferð:
- Setjið smjörið í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál og leyfið að kólna í u.þ.b. 10 mín.
- Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda og salt og setjið til hliðar.
- Hrærið sykrunum saman við smjörið með písk og bætið síðan við egginu, eggjarauðunni og vanilludropum.
- Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna með sleikju, bætið síðan heslihnetunum og súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skiptið deiginu í helming og rúllið í 2 lengjur og kælið inn í ísskáp a.m.k. 1 klst eða helst yfir nótt.
- Hitið ofninn á 180 ° C blástur og skerið deig lengjuna í sneiðar og leggið á bökunarplötu með bökunar pappír og bakið í 8-12 mínútur.
- Leyfið síðan aðeins að kólna og njótið með ísköldu mjólkurglasi.





