Súkkulaði myntu smákökur:
- 355 g hveiti
- 50 g kakó
- 2 tsk liftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk maísmjöl
- 225 g smjör
- 200 g púðursykur
- 120 g sykur
- 2 eggjarauður
- 1 egg
- 1 tsk vanilla
- 100 g súkkulaði bitar
- Myntu jóla stafur/candy cane (til skrauts)
Myntufylling:
- 100 g Siríus súkkulaði með pipp fyllingu
- 20 g smjör
- 25 g sykur
- 25 g rjómi
- 1 msk kakó
- 1/2 tsk salt
Aðferð:
Myntu fylling:
- Bræðið öll hráefnin saman í miðlungs potti yfir lágum hita. Hrærið stöðugt með sleikju þar til allt hefur bráðnað saman. Hellið síðan í skál til að kólna inn í ísskáp ca 4 klst eða yfir nótt.
- Skammtið fyllingunni í 5-10g kúlur og leggjið á bökunar pappír og fristið á meðan þið gerið köku deigið.
Aðferð:
- Hrærið saman þurrefnunum og leggjið til hliðar.
- Þeytið saman smjör, sykur og vanillu þar til létt og ljóst.
- Hrærið síðan við eggjunum og eggjarauðunni út og síðan þurrefnunum og súkkulaði bitunum.
- Rúllið deiginu í 20-30g kúlur. Fletjið aðeins úr hverri deig kúlu og setjið pipp fyllinguna í miðjuna og rúllið öllu saman í eina kúlu og leggjið að bökunar plötu með bökunar pappír.
- Setjið nokkra súkkulaði bita og muldum candy cane/ jóla staf ofná hverja deig kúlu.
- Bakið í á 180 C bæstri í 10-12 mín
- Leifið að kólna í 15 mín og njótið!





