Flødeboller með marsípanbotni

Geymsla: 2–3 dagar við stofuhita (lengur í kæli)

Marsípanbotnar

Hráefni

  • 200 g marsípan
  • Smá flórsykur

Leiðbeiningar

  1. Stráið flórsykri á vinnuborðið og rúllið út marsipanið í ca 3–4 mm þykkt.
  2. Skerið út hringi með smákökuformi (5–6 cm).
  3. Setjið á bökunarplötu með pappír.
  4. Bakið við 180°C í 4-5 mínútur, bara þar til yfirborðið þornar örlítið. Látið kólna alveg.

Marengsfylling (ítalskur marengs)

Hráefni

  • 150 g eggjahvítur (ca. 5 egg)
  • 300 g sykur
  • 100 ml vatn
  • 1 tsk vanillupaste eða fræ úr 1 vanillustöng
  • ½ tsk edik eða 1 tsk sítrónusafi

Leiðbeiningar

  1. Setjið sykur og vatn í pott og hitaðu upp í 118–120°C.
  2. Á meðan: þeytið eggjahvítur með ediki/sítrónu og vanillu í hrærivél þar til stífþeytt.
  3. Helltu heita sykursírópinu varlega í marengsinn meðframm kanntinum af skálinni með þeytaran á meðalhraða.
  4. Þeyttu í 8–10 mínútur þar til marengsinn er stífur og glansandi og setjið síðan í sprautupoka með stórum hringlaga stút.

Samsetning

  1. Sprautið háan topp af marengs á hvern marsípanbotn.
  2. Láttu standa í 10–15 mínútur svo yfirborð þorni örlítið.

Súkkulaðihjúpur

Hráefni

  • 300–400 g Siríus Suðusúkkulaði súkkulaði
  • Kókosmjöl eða

Leiðbeiningar

  1. Temperaðu súkkulaðið og dýfið flødebollunum á hvolf í súkkulaðið.
  2. Láttu restina af súkkulaðinu leka af og settu á disk eða á bakka.
  3. Láttu súkkulaðið harna við stofuhita.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)