Hráefni:
- 2 egg
- 2 dl sykur
- 5 dl kókosmjöl
- 1 tsk vanilludropar
- 150 g brætt Sirius Suðusúkkulaði
Aðfetð:
- Þeytið egg og sykur saman. Bætið kókosmjöli og vanillu dropum vel saman við með sleikju. Setjið deigið á plötu með teskeið.
- Bakið í 180°C ofni í 10-12 mínútur og leyfið síðan að kólna.
- Bræðið súkkulaðið og dýfið neðsta hluta kókostoppanna ofan í súkkulaðið og setjið á ofnplötu með smjörpappír þar til súkkulaðið hefur harðnað.





