Skonsur
- 420 g hveiti
- 1 kúpt msk. lyftiduft
- 1 tsk. salt
- 1-2 msk. sykur
- Börkur af ½ appelsínu
- 100 g kalt smjör (skorið í bita)
- 220 g súrmjólk
- 1 egg
- Smá mjólk til að pensla með
- Smá hrásykur til að strá yfir
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 200°C.
- Finnið til miðlungsstóra skál og setjið sykur og appelsínubörkinn í skálina.
- Nuddið saman þar til sykurinn hefur tekið smá appelsínugulan lit og leggið til hliðar.
- Setjið hveiti, lyftiduft, smjör og salt í matvinnsluvél. Kveikið á vélinni og brytjið smjörið í minni bita þar til að blandan líkist sandi, með nokkrum aðeins stærri bitum af smjöri.
- Það er líka hægt að gera þetta með höndunum og nudda smjörinu við hveitið ef vill.
- Bætið síðan hveiti/smjörblöndunni saman við sykurblönduna og blandið vel saman.
- Hellið síðan súrmjólkinni út í og bætið egginu saman við og hrærið svo með sleikju þar til að allt kemur nokkurn veginn saman, passið samt að hræra ekki of mikið.
- Setjið deigið út á borð og hnoðið allt varlega saman í stóra sjúskaða kúlu.
- Fletjið út í u.þ.b. 3 cm þykkt deig og stimplið út skonsur með 6-8 cm hringlaga formi.
- Raðið á bökunarplötu og penslið með mjólk og stráið smá hrásykri ofan á.
- Bakið við 210°C í 12 mínútur.
Jarðarberjasulta
- 600 g jarðarber (fersk eða frosin)
- 200 g sykur
- Safi úr ½ -1 sítrónu
Aðferð:
- Ef það eru notuð fersk jarðarber í sultuna þá er gott að skera þau í minni bita.
- Setjið annars allt saman í miðlungsstóran pott og hitið saman við miðlungshita.
- Hrærið allt vel saman og vaktið pottinn vel, um leið og sykurinn hefur bráðnað hrærið þá stöðugt í blöndunni og látið koma upp smá suðu.
- Látið allt malla á vægum hita í u.þ.b. 10 mínútur.
- Hrærið stöðugt.
- Þegar blandan er orðin aðeins þykkari er gott að taka smá af sultunni með kaldri skeið eða setja á kaldan disk og láta standa í smástund til að sjá áferðina á sultunni þegar hún kólnar.
- Þá sjáið þið hvort það þarf að elda hana lengur til að gera hana þykkari eður ei.
- Þegar blandan er orðin eins þykk og þið viljið hafa hana er gott að færa hana yfir í annað ílát sem þolir hita og leyfa að kólna við stofuhita, geymið síðan inni í ísskáp þar til skonsurnar verða bornar fram.
- Hægt er að gera sultuna fyrir fram og eiga hana til í ísskápnum.
PRUFA með checkbox
Aðferð:
Byrjið á því að hita ofninn í 200°C.
Finnið til miðlungsstóra skál og setjið sykur og appelsínubörkinn í skálina.
Nuddið saman þar til sykurinn hefur tekið smá appelsínugulan lit og leggið til hliðar.
Setjið hveiti, lyftiduft, smjör og salt í matvinnsluvél. Kveikið á vélinni og brytjið smjörið í minni bita þar til að blandan líkist sandi, með nokkrum aðeins stærri bitum af smjöri.
Það er líka hægt að gera þetta með höndunum og nudda smjörinu við hveitið ef vill.
Bætið síðan hveiti/smjörblöndunni saman við sykurblönduna og blandið vel saman.
Hellið síðan súrmjólkinni út í og bætið egginu saman við og hrærið svo með sleikju þar til að allt kemur nokkurn veginn saman, passið samt að hræra ekki of mikið.
Setjið deigið út á borð og hnoðið allt varlega saman í stóra sjúskaða kúlu.
Fletjið út í u.þ.b. 3 cm þykkt deig og stimplið út skonsur með 6-8 cm hringlaga formi.
Raðið á bökunarplötu og penslið með mjólk og stráið smá hrásykri ofan á.
Bakið við 210°C í 12 mínútur.





