Smákökur með trönuberjum og hvítu súkkulaði

Hráefni:

  • 170 g smjör
  • 200 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 1 tsk vanillupaste/dropar
  • 220 g hveiti
  • 1/2 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 150 g Siríus Hvítir súkkulaði dropar
  • 100 g trönuber

 

Aðferð:

  • Setjið smjörið í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál og leyfið að kólna í u.þ.b. 10 mín.
  •  Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda og salt og setjið til hliðar.
  • Hrærið sykrunum saman við smjörið með písk og bætið síðan við egginu, eggjarauðunni og vanilludropum.
  • Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna með sleikju. Bætið síðan trönuberjunum og hvítu súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  • Skammtið deiginu í kúlur með lítilli eða miðlungs ísskeið og leggjið á bökunar pappír og bakið á 180 ° C blástur í 8-12 mínútur.
  • Leyfið síðan aðeins að kólna og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)