Súkkulaði myntu smákökur

Súkkulaði myntu smákökur:

  • 355 g hveiti
  • 50 g kakó
  • 2 tsk liftiduft
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 1 tsk maísmjöl
  • 225 g smjör
  • 200 g púðursykur
  • 120 g sykur
  • 2 eggjarauður
  • 1 egg
  • 1 tsk vanilla
  • 100 g súkkulaði bitar
  • Myntu jóla stafur/candy cane (til skrauts)

Myntufylling:

  • 100 g Siríus súkkulaði með pipp fyllingu
  • 20 g smjör
  • 25 g sykur
  • 25 g rjómi
  • 1 msk kakó
  • 1/2 tsk salt

 

Aðferð:

 

Myntu fylling:

  • Bræðið öll hráefnin saman í miðlungs potti yfir lágum hita. Hrærið stöðugt með sleikju þar til allt hefur bráðnað saman. Hellið síðan í skál til að kólna inn í ísskáp ca 4 klst eða yfir nótt.
  • Skammtið fyllingunni í 5-10g kúlur og leggjið á bökunar pappír og fristið á meðan þið gerið köku deigið.

Aðferð:

  • Hrærið saman þurrefnunum og leggjið til hliðar.
  • Þeytið saman smjör, sykur og vanillu þar til létt og ljóst.
  • Hrærið síðan við eggjunum og eggjarauðunni út og síðan þurrefnunum og súkkulaði bitunum.
  • Rúllið deiginu í 20-30g kúlur. Fletjið aðeins úr hverri deig kúlu og setjið pipp fyllinguna í miðjuna og rúllið öllu saman í eina kúlu og leggjið að bökunar plötu með bökunar pappír.
  • Setjið nokkra súkkulaði bita og muldum candy cane/ jóla staf ofná hverja deig kúlu.
  • Bakið í á 180 C bæstri í 10-12 mín
  • Leifið að kólna í 15 mín og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)