Snúða deig:
- 450 g. Hveiti
- 1 pakki þurrger (1 ½ tsk)
- 80 g sykur
- ½ tsk salt
- 100 g smjör
- 220 g mjólk við stofuhita
- 1 egg
Súkkulaði fylling:
- 1 plata Síríus Barón súkkulaði 56% (150 g)
- 120g smjör
- 105g flórsykur
- 42g kakó
- 40 g rjómi
Samsetning:
- Flórsykur til að strá ofan á
Aðferðir
Snúða deig:
- Í stórri skál blandið saman hveiti, sykur og þurrger með písk. Setjið svo smjör og mjólk í sömu skál og hnoðið í hrærivél í míntútu. Blandið síðan saman við eggi og salti á meðan hrærivélinni gengur og hnoðið í u.þ.b 10 mín.
- Leggið síðan yfir viskastykki eða plastfilmu og látið hefast í 30-60 mín við stofuhita eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Á meðan deigið er í hefun er sniðugt að gera súkkulaði fyllinguna.
Súkkulaði fylling:
- Bræðið allt saman í potti og gætið þess að ekkert brenni í botninum með því að hræra stöðugt, leyfið síðan fyllingunni að kólna í smá stund.
Samsetning:
- Stráið hveiti á vinnu borðið og fletjið út deigið í stóran ferhyrning með kökukefli. Smyrjið síðan súkkulaði blöndunni yfir allt deigið. Brjótið síðan upp hliðarnar eina í einu af deiginu þannig að þrjú lög af deigi er staflað ofan á hvort annað.
- Fletjið deigið aðeins út til að jafna allt. Notið síðan pizza skera til að skera nokkrar lengjur úr deiginu og rúllið þeim upp eins og í snúðaform.
- Leggið snúðana á bökunarplötu með bökunar pappír of hefið við stofuhita með plastfilmu ofan á í 30-50 mín eða þar til að þeir hafa púffast töluvert upp.
- Bakið síðan á 190°c í 12-16 mínútur.
- Leyfið rétt svo að kólna og stráið smá flórsykri ofan á og njótið!





