Deig:
120 g smjör við stofuhita
120 g sykur
1 egg
½ tsk vanilludropar
215 g hveiti
25 g maísmjöl
Sulta:
100 g frosin hindber
125 g sykur
Krem:
50 g smjör
100 g flórsykur
½ tsk vanilludropar
Aðferð:
Deig:
- Þeytið smjör og sykur þar til létt og ljóst.
- Bætið egginu og vanilludropunum út í og hrærið.
- Sigtið restina af hráefnunum út í og hnoðið saman.
- Setjið deigið í plastfilmu eða bökunarpappír og kælið í 1 klst.
- Stráið flórsykri á vinnuborðið og rúllið út deiginu og skerið út kökurnar með hringlaga smákökuformi. Leggið síðan kökurnar á bökunarplötu og notið lítið smákökuform til að skera út miðjuna á helmingnum af kökunum, Það er líka líka hægt að nota stóra endan á sprautustút eða kera út með hníf.
- Kælið síðan í 20 mín .
- Bakið síðan á 150°c í 10-12 mín.
- Leyfið að kólna í 30 – 60 mín.
Sulta:
- Setjið hindberin í pott á miðlungs hita og stappið þeim vel saman.
- Bætið sykrinum út í og sjóðið í c.a. 4 mín.
- Hellið sultunni í gegn um sigti og látið kólna.
Krem:
- Hrærið smjöri, flórsykri og vamillu saman þar til létt og ljóst og leggi til hliðar.
Setja saman:
- Setjið kremið á botn kökuna og svo sultu ofan á, setjið topp kökuna með gatinu ofan á.
- Stráið síðan flórsykri ofan á og njótið





