Crème brûlée

Hráefni:

  • 500 gr rjómi
  • 38 gr sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 3 eggjarauður
  • 38 gr sykur
  • Klípa af salti

 

Aðferð:

  1. Hitið ofninn á 150°c upp og niður hiti
  1. Setjið rjóma, 38 gr sykur og vanilludropar í pott þar til það kemur upp létt suða. Setjið til hliðar
  2. Takið með stóra skál og setjið eggjarauður, 38 gr sykur og klípu af salti og hrærið með písk í uþb. 3-4 mín þar blandan lýsist í lit.
  3. Hellið rjóma blöndunni hægt og rólega út í eggjablönduna og hrærið stöðugt þar til allt hefur blandast vel saman
  4. Leggið creme brulee form eða lítil eldföst form í djúpa ofnskúffu. Skiptið deiginu á milli formanna og fyllið ofnskúffuna með heitu vatni þar til það nær upp hálfa hliðina á formunum.
  5. Leggið varlega inn í ofn og bakið í 35-50 mín eða þar til Creme Brulee jigelar smá þegar hreyft við því.
  6. Takið varlega úr vatninu og leyfið að kólna í uþb 1 klst, setjið síðan plastfilmu yfir og kælið inn í ísskáp í amk. 1 klst en helst yfir nótt
  7. Eftir að creme bruleeið hefur kólnað er stráð smá sykri ofan á og notað brennara til að bræða sykurinn
  8. Kælið svo inn í ísskáp í uþb. 10 mín og svo bara njótið!:)

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)