Þessi uppskrift gerir nóg fyrir 1 og jafnvel 2 skammta.
Jógúrt:
- 200 g Grísk jógúrt frá Biobu
- 1 hvítlauksrif rifin
- Smá sítrónusafi úr 1/2 sítrónu
- 1 tsk þurkað kóríander eða 2 msk saxað kóríander
Aðferð:
- Hrærið saman gríska jógúrt, rifinn hvítlauk, kóríander og sítrónu. Kryddið með salt og pipar eftir smekk.
- Dreyfið blöndunni í djúpan disk.
Hleypt Egg:
- 2-3 egg
- Vatn
- Smá matreiðslu edik
Aðferð:
- Útbúið eggin með því að sjóða vatn í potti með dash af ediki (ca 1/2-1 tsk), þegar suðan er komin upp má lækka aðeins hitann og búa til spíral í vatnið með því að snúa því í hringi með sleif. Brjótið hvert egg í bolla og setjið eitt egg í einu útí vatnið. Leyfið um 10 sekúndum að líða á milli eggja. Stillið klukkuna á 3 mínútur og veiðið eggin svo uppúr með gataspaða og færið yfir á eldhúspappír.
Ristað brauð:
- 2-3 brauðsneiðar
- 15 g smjör
Aðferð:
- Bræðið smjör á pönnu, leggjið síðan brauðið í pönnuna og ristið á báðum hliðum þar til að það er gullið brúnt
Kryddsmjör:
- 30 g smjör
- 1 tsk. Papriku duft
- 1/4 tsk chilli duft (valfrjálst)
Aðferð:
- Bræðið smjör, papriku og chilli saman og leggjið til hliðar.
Samsetning:
- Leggið eggin ofan á jógúrtblönduna og dreiðið síðan kryddsmjörinu yfir og toppið síðan með smá rifinni sítrónu og kóríander.
- Njótið með ristuðu brauði.





