Hjónabandssæla

Hráefni

  • 240 g smjör við stofuhita
  • 200 g sykur
  • 280 g hveiti
  • 150 g haframjöl
  • 1 egg
  • 1 tsk matarsódi
  • 265 g rabbabarasulta

Aðferð

  1. Byrjið á því að kveikja á ofninum og stillið á 180 C, og stillið á blástur. Takið 20×30 cm form (líka hægt að nota 25 cm smelluform) og klæðið það með smjörpappír. Mér finnst best að krupa það og svo leggja hann í formið og mótið eftir hliðunum.
  2. Setjið öllum hráefni saman í stóra skál og hrærið með hrærivél eða trésleif þar til allt er vel blandað saman.
  3. Takið ¾ af deiginu og pressið niður í formið, passið að degið sé jafn þykt og fylli allt formið.
  4. Smyrjið sultunni yfir allt deigið.
  5. Takið restina af deiginu og miljið því jafnt ofaná sultulagið.
  6. Bakið í 25-30 mín, hjónabandælan ætti að vera gullin brún að ofan, takið á úr ofninum og leiðið að kólna í uþb. 1 klst. Svo má skera og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)