Brownie Smákökur

Hráefni:

  • 200 g suðusúkkulaði
  • 55 g smjör
  • 2 egg
  • 100 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 60 g hveiti
  • 25 g kakó
  • ½ tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt

 

Aðferð:

  1. Bræðið smjör og súkkulaði í potti og leyfið svo að kólna.
  2. Þeytið egg, sykur og vanilludropa þar til létt og ljóst í u.þ.b. 5-10 mín
  3. Hrærið síðan súkkulaði blöndunni við eggjablönduna.
  4. Sigtið svo saman hveiti, kakó, lyftidufti og salti út í skálina og blandið vel saman og kælið deigið í 30 mín inn í ískáp.
  5. Skammtið síðan deiginu í litlar kúlur með teskeiðum á bökunarplötu með bökunarpappín og bakið á 170 C í 7-9  mínútur.
  6. Leifið að kólna í 5-10 mín og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)