Hrekkjavöku súkkulaðibúðingur

Gerir 4 stk

Hráefni

  • 3 egg (ca 50 g eggjarauður, 100 g eggjahvítur)
  • 120 gr. rjómi
  • 45 gr. mjólk
  • 190 gr. súkkulaði
  • 15 gr. sykur
  • smá salt

Aðferð

  1. Hrærið rjóma, mjólk, eggjarauðum í pott og færið síðan yfir á lágan hita. Hrærið stöðugt þar til blandan byrjar að þykkjast smá eða komin upp í 65-70°c. Takið af hitanum og hellið í gegnum sigti yfir súkkulaði og sjávar salt. Leyfið að standa í 5 mín.
  2. Hrærið síðan með töfrasprota og hellið í miðlungs skál.
  3. Þeytið eggjahvítur með sykri þar til þær halda forminu sínu rétt svo en ekki of stífþeytt.
  4. Hrærið eggjahvíturnar saman við í súkkulaðið í 3 skömmtum rosa varlega.
  5. Skammtið búðingnum síðan í 4 glös og kælið í amk 6 klst eða helst yfir nótt.

 

Skreyta

  1. Setjið u.þ.b hálfan pakka af Oreo í matvinnsluvél og hakkið saman þar til að öll kexin eru orðin að fínni mylsnu.
  2. Setjið smá af Oreo mylsnunni ofan á hvern búðing og skreytið síðan með allskonar hrekkjavöku nammi. Ég notaði gúmmí orma og bjó til litla súkkulaði legsteina úr rjómasúkkulaði og notaði til þess sílikon legsteina form.

 

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)