Dökk­ar súkkulaðibita­kök­ur í hrekkja­vöku­bún­ing

Hráefni

  • 113 g smjör
  • 100 g sykur
  • 100 g púðursykur
  • 1 egg
  • 1 eggjarauða
  • 1 msk vanilludropar
  • 125 g hveiti
  • 50 g dökt kakó
  • 1 msk maísmjöl
  • 1 tsk matarsódi
  • 1/2 tsk salt
  • 100 g súkkulaði bitar
  • 100 g appelsínugulum m&m eða smartís

 

Aðferð

  1. Bræðið smjörið og leyfið að kólna í uþb 10 mín.
  2. Í annarri skál sigtið saman hveiti, matarsóda, maísmjöli, kakói og salti.
  3. Hrærið sykrana saman við smjörið, síðan eggin og vanilludropa.
  4. Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna, bætið súkkulaðibitum og appelsínugulu Smarties/m&m (súkkulaði nammi bitunum) út í og hrærið vel.
  5. Skammtið deiginu í Kúlur og bakið á 180°c í 10-12 mín.
  6. Takið kökurnar út og stingið nokkrum auka Smarties ofan í kökurnar að vild.
  7. Leyfið þeim aðeins að kólna og síðan bara njótið og gleðilega hrekkjavöku!

 

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)