Drakúla Red vel­vet bolla­kök­ur

24 stk

 

Hráefni

  • 300 g hveiti
  • 12 g kakó
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 tsk salt
  • 335 g sykur
  • 245 g súrmjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 egg
  • 300 g bragðlaus olía
  • 1 tsk matreiðslu borðedik
  • 1-3 tsk rauður matarlitur
  • 25 g heitt vatn

Aðferð

  1. Sigtið saman hveiti, kakó, matarsóda og salt í stórri skál, hrærið aðeins saman og setjið til hliðar
  2. í minni skál hrærið saman sykri, súrmjólk, vanilludropum, eggjum, olíu, ediki og matarlit. Bætið við eins mikið af rauðum matarlit þar til liturinn af deiginu er eins sterkur og þú vilt.
  3. Hellið síðan blautefnunum saman við þurrefnin og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hellið síðan heita vatninu út í og hrærið þar til það hefur blandast vel við deigið.
  4. Skammtið síðan í bollakökuform og bakið á 180°C í 15-20 mín

 

Rauð karamellusósa

  • 150 g púður­syk­ur
  • 150 g smjör
  • 180 g rjómi
  • 1 tsk. salt
  • Rauður mat­ar­lit­ur eft­ir smekk

Aðferð

  1. Setjið smjörið og púður­syk­ur­inn í meðal­stór­an pott. Hafið miðlungs hita á hell­unni og hrærið stöðugt í u.þ.b. 5 mín­út­ur  eða þar til smjörið og púður­syk­ur­inn eru búinn að bland­ast vel sam­an.
  2. Hellið rjóm­an­um út í og hrærið yfir miðlungs hita í 3 mín­út­ur.
  3. Takið af hit­an­um og hellið í ílát sem þolir hita.
  4. Setjið ½ tsk. af salti og nokkra dropa af rauðum mat­ar­lit út í og hrærið sam­an.
  5. Leyfið blönd­unni síðan að kólna í u.þ.b 3 klst inn í ísskáp.
  6. Setjið síðan kalda karamelluna í sprautupoka og setjið til hliðar.

 

Rjómaosta krem

  • 150 g smjör við stofu­hita
  • 225 g rjóma­ost­ur við stofu­hita
  • 450 g flór­syk­ur
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð

  1. Þeytið sam­an smjör og flór­syk­ur var­lega sam­an í hræri­vél, passa skal að flór­syk­ur­inn þeyt­ist ekki upp úr skál­inni.
  2. Þeytið í um það bil 3-5 mín­út­ur.
  3. Setjið síðan vanillu­drop­ana og rjóma­ost­inn út í og hrærið vel sam­an sam­an (gott er að setja rjóma­ost­inn smátt og smátt í hræri­skál­ina meðan þeyt­ar­inn er að vinna en passa að heild­ar­tím­inn sé ekki meiri en c.a. 1-2 mín­út­ur.).
  4. Setjið kremið í sprautu­poka með stjörnu stút og leggið til hliðar.

 

Skreyta

  1. Búið til lítið gat í miðju bollakökurnar með hníf eða litlum sprautustút.
  2. Sprautið smá af karamellunni í miðjuna á bollakökunni.
  3. Skreytið kökurnar með kreminu og bræðið síðan karamellusósuna aðeins niður í örbylgjuofninum eða yfir vatnsbaði til að hafa hana meira fljótandi. Takið skeið og hellið smá ofan á hverja bollaköku.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)