Fyrir 6-8 manns
Kökubotnar
- 300 g hveiti
- 1 ½ tsk. lyftiduft
- ¾ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 2 tsk. kanill
- 2 tsk. engifer
- ½ tsk. múskat
- 260 g púðursykur
- Börkur af 1 appelsínu
- 3 egg
- 300 ml olía
- 300 g rifnar gulrætur
- 150 g saxaða valhnetur
Aðferð
- Hitið ofninn í 170°C hita og smyrjið 2 kökuform í sömu stærð með olíu og klippið út bökunarpappír í hring fyrir botninn á forminu.
- Í lítilli skál blandið saman hveiti, lyftiduft, matarsódi, salt, engifer dufti og kanil og leggið til hliðar.
- Hrærið saman púðursykur, appelsínubörk, egg og olíu í stórri skál.
- Bætið síðan þurrefnunum við og hrærið vel saman, svo er gulrótunum og valhnetunum bætt við og hrærið vel.
- Skiptið deiginu jafnt á milli tveggja kökuforma og bakið í 30-40 mínútur í ofninum við 170°C hita.
- Leyfið kökunum á kólna í smá stund og takið þær síðan úr formunum, fjarlægið bökunarpappírinn af botninum og leyfið kökunum að kólna alveg.
- Þegar þær hafa kólnað alveg, skerið þá toppinn af kökunum þannig þær eru flatar ofan á.
Krem
- 150 g smjör við stofuhita
- 225 g rjómaostur við stofuhita
- 450 g flórsykur
- 1/2 – 1 tsk. sítrónusafi
- 1 tsk. vanilludropar
Aðferð
- Þeytið saman smjör og flórsykur varlega saman í hrærivél, passa skal að flórsykurinn þeytist ekki upp úr skálinni.
- Þeytið í um það bil 3-5 mínútur.
- Setjið síðan sítrónusafann, vanilludropana og rjómaostinum út í og hrærið vel saman saman (gott er að setja rjómaostinn smátt og smátt í hræriskálina meðan þeytarinn er að vinna en passa að heildartíminn sé ekki meiri en c.a. 1-2 mínútur.).
- Setjið kremið í sprautupoka með hringlóttum stút og leggið til hliðar.
Samsetning á kökunni
- Takið einn kökubotninn og setjið á kökudisk, sprautið doppur af kreminu allan hringinn með fram kantinum og fyllið miðjuna með meira kremi og setjið síðan hina hæðina ofan á.
- Sprautið kremi ofan á kökuna og fletjið það út í hring, dreifið svo söxuðum valhnetum með fram kantinum og skreytið með gulróta skrauti, ég gerði litlar gulrætur ú sykurmassa.
- Kælið kökuna inn í kæli í að minnsta kosti 30 mínútur áður en þið berið hana fram og skerið hana síðan og njótið.





