Marengsrúlla með ferskum berjum

Marengs

  • 5 eggjahvítur
  • 280 g sykur
  • Flórsykur til að strá yfir

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 180°C og stillið á blástur. Setjið bökunarpappír í 23×33 cm bökunarplötu og brjótið inn hornin svo marengsinn komist vel fyrir.
  2. Setjið eggjahvíturnar í stóra skál og þeytið með hrærivél þar til þær eru næstum stífar. Á meðan hrærivélin er í gangi bætið sykrinum út í, einni matskeið í einu. Hrærið marengsinn áfram þar til hann er stífþeyttur. Hellið marengsinum ofan í formið og fyllið út í alla kanta og bakið í 15 mínútur.
  3. Á meðan marengsinn er að bakast setjið bökunarpappír á borðið og dreifið flórsykri yfir hann. Það veldur því að marengsinn festist ekki við pappírinn þegar við losum hann.
  4. Takið marengsinn úr ofninum og hvolfið honum á bökunarpappírinn þannig að hann sé á hvolfi. Takið bökunarpappírinn sem hann bakaðist á varlega af og látið kólna í 20-30 mínútur.

 

Rjómafylling:

  • 250 g rjómi
  • 50 g brætt súkkulaði
  • 90 g bláber
  • 100 g jarðarber
  1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Setjið til hliðar og látið kólna örlítið.
  2. Þeytið rjómann þar til hann er léttþeyttur. Hellið súkkulaðinu út í rjómann og hrærið aftur þar til hann er frekar stífur.
  3. Skerið jarðarberin í þunnar sneiðar og bláberin í tvennt. Þegar marengsbotninn hefur kólnað hæfilega er tímabært að setja rjómann á botninn og dreifið honum einnig í alla kanta. Dreifið berjunum jafnt yfir rjómann. Rúllið upp marengsinum í þétta rúllu, það er gott að nota bökunarpappírinn til að hjálpa þér að rúlla honum upp. Setjið rúlluna á disk og skreytið með rjóma, berjum og flórsykri ef þið viljið. Kælið rúlluna aðeins þannig að rjóminn taki sig og njótið vel.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)