Klassískt Tiramisu

lady fingers kex

  • 6 egg
  • 216 g sykur
  • Smá klípa af salti
  • 1 tsk vanilludropar
  • 295 g hveiti
  • flórsykur til að strá yfir

Aðferð:

  • Hitið ofnin á 180 C
  • Þeytið eggin, sykurinn, saltið og vanillu saman í hrærivél þar til létt og ljóst í u.þ.b 5-7 mín
  • Hrærið síðan hveitinu varlega við með sleikju og færið síðan í sprautu poka með hringlaga stút
  • Sprautið litlar lengjur út með deiginu á bökunar pappír og skráið vel af flórsykri ofan á með sigti
  • Bakið í 8-12 mín eða þar til létt gull brúnir
  • Takið úr ofninum og leifið að kólna

mascarpone fylling:

  • 5 miðlungs egg
  • 90g sykur (fyrir eggjarauðurnar)
  • 30g sykur (fyrir eggjahvíturnar)
  • 2-3 msk amaretto
  • 1 tsk vanillu dropar eða paste
  • 500g Mascarpone ostur

Aðferð:

  • Þeitið saman eggjarauður og sykur saman þar til létt og ljóst og mest af sykrinum hefur leist upp, hrærið síðan ostinum, amaretto og vanillu við og setjið til hliðar.
  • Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn saman þar til stíf þeytt
  • Takið 1/3 af eggjahvítunum ig blandið saman við eggjarauðurnar, takið síðan restina af eggjahvítunum í tveimur skömmtum og blandið varlega saman þar til allt hefur blandast vel saman. Varist þess að blanda ekki of mikið
  • kaffi blanda:
  • 600ml kallt sterkt kaffi
  • 3 msk amaretto

Aðferð:

  • Blandið kaffinu og amarettoinu í miðlungs skál og setjið til hlupar

Samsetning:

  • Takið stórt ferkanntað og dífið lady fingers kexinu rétt svo ofan í kaffi blönduna og ráðið í botninn þar til allur botninn er þalin kexinu.
  • Takið síðan helminginn af mascaropne fyllingunni og smirjið yfir
  • Endurtakið svo með því að setja annað lag af kexinu díft ofan í kaffið  og síðan restina af fyllingunni ofaná
  • Sléttir svo vel á yfirborðinu og kælið inn í ísskáp hellst yfir nótt eða amk. 6-8 klst
  • Stráið svo kakói yfir með sigrið og berið framm og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)