Þessir kanilsnúar eru svo dúnmjúkir að þeir bráðna í munninum manns. Fullkomnir fyrir sunnudags brösin, morgunmatinn eða bar hvenær sem er. Ég hef verið að vinna í þessari uppskrift í langan tíma og ég tel hana vera alveg fullkomin núna. Þeir eru svo léttir og mjúkir, fullkomið kanil bragð og kremið tekur snúða á alveg yfir toppin. Ég mæli hiklaust með þessari uppskrift og hlakka til að að þú færð að smakka þá.
Snúða deig:
- 450 g. Hveiti
- 1 pakki þurrger (1 ½ tsk)
- 80 g sykur
- ½ tsk salt
- 100 g smjör
- 220 g mjólk við stofuhita
- 1 egg
Aðferð:
- Í stórri skál blandið saman hveiti, sykur og þurrger með písk. Setjið svo smjör og mjólk í sömu skál og hnoðið í hrærivél í míntútu. Blandið síðan saman við eggi og salti á meðan hrærivélinni gengur og hnoðið í u.þ.b 10 mín.
- Leggið síðan yfir viskastykki eða plastfilmu og látið hefast í 30-60 mín við stofuhita eða þar til deigið hefur tvöfaldast í stærð.
- Á meðan deigið er í hefun er sniðugt að gera kanil fyllinguna.
Kanil fylling:
- 80 g púðursykur
- börkur af 1 appelsínu
- 1oo G smjör
- 1 msk kanill
Aðferð:
- Nuddið appelsínu börkinn við púðursykur inn þar til að sykurinn tekur í sig appelsínu ilm.
- hrærið síðan smjörinu og kanil við með sleikju og leggjið síðan til hliðar
Samsetning:
- Stráið hveiti á vinnu borðið og fletjið út deigið í stóran ferhyrning með kökukefli. Smyrjið síðan kanil blöndunni yfir allt deigið. Rúllið síðan upp deiginu og skerið endana af og síðan í 8 stk.
- Raðið síðan í ferkantað ofnfast form og leggjið viskastykki eða plastfilmu yfir og hefið snúðana við stofuhita eða við 30˚c í 30-50 mín eða þar til að þeir hafa tvöfaldast í stærð.
- Bakið síðan á 180˚c í 20 mínútur.
- Leyfið rétt svo að kólna á meðan þið gerið kremið.
Mascarpone krem:
- 200 g smjör við stofuhita
- 200 g flórsykur
- 200 g mascarpone við stofuhita
- 1 tsk vanillu paste/dropar
Aðferð:
- Þeytið öll hráefnin saman í hrærivél eða með handþeytara þar til létt og ljóst í u.þ.b 5-10 mín.
- Dreyfið síðan kreminu yfir snúðana eftir að Þeyr hafa kólnandi í 30 mín. Best er að borða snúðana stuttu eftir að þeir koma úr ofninum, njótið!





