Sítrónu Posset

Hráefni:

  • Sítrónubörkur af 1 sítrónu
  • 4-5 sítrónur (c.a. 60g af sítrónusafa)
  • 240 g rjómi
  • 50 g Nóa Siríus Hvítir súkkulaðidropar
  • 1/2 tsk vanilludropar eða paste
  • 50 g sykur

Aðferð:

  • Skerið sítrónurnar í helming og notið skeið til að skófla öllu innihaldinu úr og í sigti með skál undir. Raðið tómu sítrónu bátunum á disk og leggið til hliðar. Þrýstið síðan innihaldinu með skeið í gegnum sigtið svo að mest allur safinn rennur í gegnum það. Vigtið 60 g af safanum og leggið til hliðar.
  • Í miðlugs potti hitið saman rjómann, hvíta súkkulaðið, sítrónubörk, vanillu og sykur. Setjið yfir miðlungs hita og hrærið stöðugt með sleikju svo að súkkulaðið brenni ekki í botninum. Hitið þar til allt súkkulaðið hefur bráðnað og að það kemur létt suða.
  • Takið af hitanum og látið standa í 10 mínútur.
  • Hellið síðan 60 g af sítrónusafanum ofaní rjóma blönduna og hrærið með písk.
  • Skammtið síðan blöndunni varlega í sítrónu skeljarnar með annað hvort lítilli ausu eða að hella úr sósukönnu.
  • Færið varlega inn í ísskáp og leyfið að kólna í amk. 4 klst.
  • Hægt er að rífa smá auka sítrónu börk ofan á til að skreyta en það er alveg valfrjálst. Njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)