Uppskriftin gefur um 30 kökur
Hráefni:
- 150 g hveiti
- 25 g kakó
- 1½ og tsk. lyftiduft
- ¼ tsk. salt
- 170 g brætt súkkulaði
- 200 g brúnn sykur
- 100 g smjör við stofuhita
- 2 egg
- 2 dl flórsykur
Aðferð:
- Byrjið á því að setja hveiti, kakó, lyftiduft og salt saman í skál, hrærið saman og setjið til hliðar.
- Því næst er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og látið kólna.
- Þeytið því næst brúnan sykur og smjör í annarri skál þar til blandan er létt og ljós. Bætið eggjunum við blönduna einu í einu. Hellið því næst súkkulaðinu út í blönduna og hrærið vel. Hellið að lokum þurrefnunum saman við og passið að hræra ekki of hratt. Setjið plastfilmu yfir deigið og látið kólna í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund.
- Takið 1 matskeið af deiginu og rúllið því í kúlu og veltið svo kúlunum upp úr flórsykri og setjið þær á plötu. Hafið smjörpappír undir. Hafið allavega 2 cm á milli kaknanna og setjið þær í ofninn á 180°C og í bakið í 8-12 mínútur.
- Leyfið að kólna í a.m.k. 10 mín og njótið með ísköldu mjólkurglasi.





