Hráefni:
- 3 eggjahvítur
- 150 g sykur
- 50 g púðursykur
- 1 poki Eitt sett lakkrís kurl
- 150 g Sirius Suðusúkkulaði dropar
Aðferð:
- Hitið ofninn á 150˚C.
- Þeytið saman eggjahvíturnar, sykur og púðursykur í hrærivél eða með handþeytara þar til létt,ljóst og stíft.
- Hellið lakkrískurli og súkkulaði dropunum út í og hrærið varlega með sleikju.
- Skammtið síðan toppunum með matskeið um á bökunarplötu með bökunar pappír.
- Bakið í 15-20 mín. Leyfið að kólna í u.þ.b 10 mín og njótið!





