Klassískar sörur

Möndlubotnar

  • 4 eggjahvítur
  • 200 g möndlumjöl
  • 200 g flórsykur

Krem

  • 4 eggjaruður
  • 1 dl sykur
  • 1 dl vatn
  • 150 g smjör við stofuhita
  • 25 g kakó
  • 20 g gott kaffi kallt
  • ½ tsk salt

Súkkulaðihjúpur

  • 300 g síríus suðusúkkulaði

Aðferðir:


Möndlubotnar

  • Aðskilið eggjarauðurnar frá eggjahvítunum og leggjið rauðurnar til hlipar fyrir kremið.
  • Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið síðan flórsykrinum og möndlumjölinu við með sleikju þar til að
  • Blandið möndlumjölinu og flórsykrinum varlega saman með sleikju.
  • Mótið kökurnar með tveimur teskeiðum og setjið á bökunarplötu með smjörpappír. Mér finnst best að setja blönuna í sprautupoka með hringlaga stút eða að klippa gat á endan og að sprauta út deiginu á plöturnar.
  • Bakið síðanná 180˚C í 10-12 mín
  • Leyfið botnunum síðan og kólna á meðan þið gerið kremið

Krem

  • Þeytið eggjaruðurnar í hrærivél þar til mjög léttar og ljósar.
  • Gerið síðan sýrópið með því að hita saman sykur og varn í miðlungs/litlum potti. Sjóðið við miðlungs hita þar til að sýrópið virðist þykkara og að hitin mælist um 115-118˚C
  • Haldið áfram að þeyta eggjahvíturnar á miklum hraða og hellið síðan sýrópinu meðfram kantinum af skálinni. Þeytið síðan blönuna þar til að hún kólnar alveg.
  • Bætið smjörinu út í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli. Bætið síðan við saltinu, kakóinu og kaffinu og hrærið þar til allt hefur komið vel saman.
  • Smirjið kreminu á möndubotnana og kælið inn í ískáp eða í fristi á meðan þið temprið súkkulaðið.

Súkkulaði hjúpur

  • það er ekki nausenlegt að tempra súkkulaðið en ég mæli mjæg mikið með því. Það gerir súkkulaðið stökkar og heldur því frá því að bráðna við stofuhita.
  • Byrjið á því að skera 100 g af súkkulaðinu mjög smátt og leggið til hliðar.
  • Bræðið síðan 200 g af súkkulaðinu yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Passið að hræra stöðugt svo að súkkulaðið brenni ekki.
  • Hitið súkkulaði upp í 48-50 C og bætið síðan fín saxaða súkkulaðinu út í og hrærið með sleikju eða skeið þar til að allt súkkulaðið hefur bráðnað og hefur kælst niður í 30-32 C.
  • Ef að það eru enn smá bitar af súkkulaði efir er allt í lagi að hita það smá upp til að bræða þá en passið að hitinn fer ekki yfir 32 til að halda temprun.
  • Dífið síðan krem hliðinni af sörunum í súkkulaðið og leyfið því að storkna.
  • Gott er að geyma sörurnar inn í frysti en það er líka hægt að geyma þær inn í ísskáp.
  • Njótið og gleðileg jól!:)

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)