Súkkulaði Pekan smákaka:
- 135 g brætt smjör
- 170 g púðursykur
- 70 g sykur
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 240 g hveiti
- 45 g kakó
- 2 tsk maísmjöl
- ½ tsk salt
- ½ tsk matarsódi
- 400 g saxaðar pekanhnetur
Karamellu miðja:
- 1 poki Nóa Siríus töggur
- 50 g rjómi
- Súkkulaði toppur:
- 150 g Nóa Siríus suðusúkkulaði
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180° C.
- Setjið bráðið smjör í stóra skál, púðursykur og sykur og blandið vel saman í c.a. 3 mín með þeytara eða hrærivél.
- Bætið síðan eggjunum og vanilludropunum við og hrærið saman þar til allt hefur blandast vel saman.
- Sigtið restina af hráefnunum, fyrir utan pecan hneturnar, út í og hrærið þar til deigið hefur komið saman.
- Takið 1 msk af deiginu og rúllið upp úr söxuðum pekanhnetum. Setjið síðan á bökunarplötu og bakið á 180°c í 5-7 mín.
- Þegar kökurnar koma úr ofninum takið litla teskeið og þrýstið í miðjuna á kökunum til þess að gera litla dæld. Leyfið að kólna og á meðan gerum til karamelluna.
Karamellu miðja:
- Setjið rjómann og karamellurnar í miðlungs pott.
- Bræðið öllu saman og og sjóðið í 5 mín. Bætið við klípu af sjávarsalti og hellið síðan í skál.
Samsetning:
- Bræðið súkkulaðið og leggið til hliðar.
- Takið eina teskeið af karamellunni og setjið ofan á kökurnar og fyllið dældirnar.
- Takið síðan hálfa teskeið af brædda súkkulaðinu og setjið ofaná karamelluna.
- Leyfið síðan að kælast í ísskáp í 30 mín og njótið!:)





