Hráefni:
- 200 g suðusúkkulaði
- 55 g smjör
- 2 egg
- 100 g púðursykur
- 50 g sykur
- 60 g hveiti
- 25 g kakó
- ½ tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
Aðferð:
- Bræðið smjör og súkkulaði í potti og leyfið svo að kólna.
- Þeytið egg, sykur og vanilludropa þar til létt og ljóst í u.þ.b. 5-10 mín
- Hrærið síðan súkkulaði blöndunni við eggjablönduna.
- Sigtið svo saman hveiti, kakó, lyftidufti og salti út í skálina og blandið vel saman og kælið deigið í 30 mín inn í ískáp.
- Skammtið síðan deiginu í litlar kúlur með teskeiðum á bökunarplötu með bökunarpappín og bakið á 170 C í 7-9 mínútur.
- Leifið að kólna í 5-10 mín og njótið!





