24 stk
Hráefni
- 300 g hveiti
- 12 g kakó
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- 335 g sykur
- 245 g súrmjólk
- 1 tsk vanilludropar
- 2 egg
- 300 g bragðlaus olía
- 1 tsk matreiðslu borðedik
- 1-3 tsk rauður matarlitur
- 25 g heitt vatn
Aðferð
- Sigtið saman hveiti, kakó, matarsóda og salt í stórri skál, hrærið aðeins saman og setjið til hliðar
- í minni skál hrærið saman sykri, súrmjólk, vanilludropum, eggjum, olíu, ediki og matarlit. Bætið við eins mikið af rauðum matarlit þar til liturinn af deiginu er eins sterkur og þú vilt.
- Hellið síðan blautefnunum saman við þurrefnin og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman. Hellið síðan heita vatninu út í og hrærið þar til það hefur blandast vel við deigið.
- Skammtið síðan í bollakökuform og bakið á 180°C í 15-20 mín
Rauð karamellusósa
- 150 g púðursykur
- 150 g smjör
- 180 g rjómi
- 1 tsk. salt
- Rauður matarlitur eftir smekk
Aðferð
- Setjið smjörið og púðursykurinn í meðalstóran pott. Hafið miðlungs hita á hellunni og hrærið stöðugt í u.þ.b. 5 mínútur eða þar til smjörið og púðursykurinn eru búinn að blandast vel saman.
- Hellið rjómanum út í og hrærið yfir miðlungs hita í 3 mínútur.
- Takið af hitanum og hellið í ílát sem þolir hita.
- Setjið ½ tsk. af salti og nokkra dropa af rauðum matarlit út í og hrærið saman.
- Leyfið blöndunni síðan að kólna í u.þ.b 3 klst inn í ísskáp.
- Setjið síðan kalda karamelluna í sprautupoka og setjið til hliðar.
Rjómaosta krem
- 150 g smjör við stofuhita
- 225 g rjómaostur við stofuhita
- 450 g flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
Aðferð
- Þeytið saman smjör og flórsykur varlega saman í hrærivél, passa skal að flórsykurinn þeytist ekki upp úr skálinni.
- Þeytið í um það bil 3-5 mínútur.
- Setjið síðan vanilludropana og rjómaostinn út í og hrærið vel saman saman (gott er að setja rjómaostinn smátt og smátt í hræriskálina meðan þeytarinn er að vinna en passa að heildartíminn sé ekki meiri en c.a. 1-2 mínútur.).
- Setjið kremið í sprautupoka með stjörnu stút og leggið til hliðar.
Skreyta
- Búið til lítið gat í miðju bollakökurnar með hníf eða litlum sprautustút.
- Sprautið smá af karamellunni í miðjuna á bollakökunni.
- Skreytið kökurnar með kreminu og bræðið síðan karamellusósuna aðeins niður í örbylgjuofninum eða yfir vatnsbaði til að hafa hana meira fljótandi. Takið skeið og hellið smá ofan á hverja bollaköku.





