Gerir ca. 12 pönnukökur
Þessi uppskrift er byggð á senu sem ég sá í þáttaseríunni Gilmore Girls. Þar sem Luke eigandi Luke´s diner gerði þessar pönnukökur handa Gilmore stelpunum og ég bara ÞURFTI að prófa þær! Mér finnst þessar pönnukökur vera jafnvel betri en venjulegar pönnukökur. Þær eru svo haustlegar og kósí að manni langar bara að fara að kúra undir teppi og horfa á Gilmore Girls. Þær eru svo léttar og bragðgóðar og brúnaða kanilsmjörið tekur pönnukökurnar alveg yfir toppin!
Brúnað kanil smjör:
- 100 g smjör
- 1 tsk kanill
Aðferð:
- Eldið smjörið í miðlungs potti yfir miðlungs/lágum hita, hrærið stöðugt þar til það kemur smá karamellu ilmur og smjörið virðist gullið brúnt.
- Hellið í skál og blandið kanilnum við og kælið inn í ísskáp á meðan þið gerið pönnukökurnar.
Pönnukökur:
- 3 1/2 dl hveiti
- 3 tsk lyftiduft
- ½ tsk salt
- 1 tsk kanill
- 1 tsk pumpkin spice (líka hægt að nota ½ tsk múskat, ½ tsk eingifer & ¼ tsk negull)
- 1 dl sykur
- 3 dl mjólk
- 1 egg
- 1 tsk vanillu paste
- 50 g brætt smjör
- 1 dl graskers mauk
Aðferð:
- Hrærið öll þurrefnin saman í miðlungs skál með písk.
- Blandið svo öllum blaut efnunum við þar til það eru eignir keikkir af hveiti eftir.
- Bræðið smá smjör á pönnu yfir miðlungs hita. Skammtið síðan 1 dl af deiginu í miðju pönnurnar, snúið síðan pönnuköku í með spaða þegar yfirborðið virðist verð matt og með nokkrum búblum, þetta ætti að taka rúmar 2-3 mín. Eldið síðan pönnuköku á hinu eigin í 1 mín í viðbót.
- Færið síðan yfir á disk og endurtakið þar til allt deigið er búið.
Bera framm:
- Takið kanil smjörið úr ísskápnum og hrærið saman þar til smjörið þykjist smá.
- Staflið pönnukökunum saman og setjið skeið af kanil smjörinu ofan á. Berið síðan fram með maple sýrópi og njótið með einum þætti af gilmore girls.





