Gulrótarkaka

Fyr­ir 6-8 manns

Köku­botn­ar

  • 300 g hveiti
  • 1 ½ tsk. lyfti­duft
  • ¾ tsk. mat­ar­sódi
  • ½ tsk. salt
  • 2 tsk. kanill
  • 2 tsk. engi­fer
  • ½ tsk. múskat
  • 260 g púður­syk­ur
  • Börk­ur af 1 app­el­sínu
  • 3 egg
  • 300 ml olía
  • 300 g rifn­ar gul­ræt­ur
  • 150 g saxaða val­hnet­ur

Aðferð

  1. Hitið ofn­inn í 170°C hita og smyrjið 2 köku­form í sömu stærð með olíu og klippið út bök­un­ar­papp­ír í hring fyr­ir botn­inn á form­inu.
  2. Í lít­illi skál blandið sam­an hveiti, lyfti­duft, mat­ar­sódi, salt, engi­fer dufti og kanil og leggið til hliðar.
  3. Hrærið sam­an púður­syk­ur, app­el­sínu­börk, egg og olíu í stórri skál.
  4. Bætið síðan þur­refn­un­um við og hrærið vel sam­an, svo er gul­rót­un­um og val­hnet­un­um bætt við og hrærið vel.
  5. Skiptið deig­inu jafnt á milli tveggja köku­forma og bakið í 30-40 mín­út­ur í ofn­in­um við 170°C hita.
  6. Leyfið kök­un­um á kólna í smá stund og takið þær síðan úr formun­um, fjar­lægið bök­un­ar­papp­ír­inn af botn­in­um og leyfið kök­un­um að kólna al­veg.
  7. Þegar þær hafa kólnað al­veg, skerið þá topp­inn af kök­un­um þannig þær eru flat­ar ofan á.

Krem

  • 150 g smjör við stofu­hita
  • 225 g rjóma­ost­ur við stofu­hita
  • 450 g flór­syk­ur
  • 1/2 – 1 tsk. sítr­ónusafi
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð

  1. Þeytið sam­an smjör og flór­syk­ur var­lega sam­an í hræri­vél, passa skal að flór­syk­ur­inn þeyt­ist ekki upp úr skál­inni.
  2. Þeytið í um það bil 3-5 mín­út­ur.
  3. Setjið síðan sítr­ónusaf­ann, vanillu­drop­ana og rjóma­ost­in­um út í og hrærið vel sam­an sam­an (gott er að setja rjóma­ost­inn smátt og smátt í hræri­skál­ina meðan þeyt­ar­inn er að vinna en passa að heild­ar­tím­inn sé ekki meiri en c.a. 1-2 mín­út­ur.).
  4. Setjið kremið í sprautu­poka með hringl­ótt­um stút og leggið til hliðar.

Sam­setn­ing á kök­unni

  1. Takið einn köku­botn­inn og setjið á kökudisk, sprautið dopp­ur af krem­inu all­an hring­inn með fram kant­in­um og fyllið miðjuna með meira kremi og setjið síðan hina hæðina ofan á.
  2. Sprautið kremi ofan á kök­una og fletjið það út í hring, dreifið svo söxuðum val­hnet­um með fram kant­in­um og skreytið með gul­róta skrauti, ég gerði litlar gulrætur ú sykurmassa.
  3. Kælið kök­una inn í kæli í að minnsta kosti 30 mín­út­ur áður en þið berið hana fram og skerið hana síðan og njótið.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)