Hindberja Tart

Tart botn

  • 100 g smjör
  • 50 g flórsykur
  • 1 eggjahvíta
  • 1/4 tsk salt
  • 1/4 tsk vanilludropar
  • 140 g hveiti
  • 1 msk möndlumjöl

Aðferð

  1. Í hrærivél setjið saman smjör, egg, salt, vanilludropa og sykurinn og þeytið saman
  2. Bætið síðan við hveitinu og möndlumjölinu og hrærið þar til allt hefur komið saman
  3. Takið degjið og setjið það á milli 2ja laga af bökunarpappír og fletjið það svo jafnt út.
  4. Takið svo annan pappírinn í burtu og og leggið deigið ofan í formið.
  5. Losið síðan hinn pappírinn í burtu og þrýstið deiginu út í alla kanta og upp hliðarnar á forminu.
  6. Ef það eru einhver göt í deiginu er gott að taka deigið sem hangir af köntunum og fylla í
    öll götin. Rúllið svo yfir kanntanna með köku kefli til að taka í burtu auka degið.
  7. Setjið deigið í frysti í 20 mínútur.
  8. Hitið ofnin á 180 C. Takið Tart botninn úr fristinum og krummpið smá bökunar pappír sem er nóg of stór til að passa í formið. Leggið pappírinn í tart skelina og hellið bökunarbaunum í pappírinn (það er líka hægt að nota þurkaðar baunir eða hrísgrjón). Bakið síðan í 10-15 mín. Takið síðan pappírinn og baunirnar varlega úr tart skelinni og leiðfið að kólna.
  9. Á meðan tart botninn kólnar er gott að gera möndlukremið

 

Möndlukrem

  • 125 g smjör
  • 96 g sykur
  • 125 g möndlumjöl
  • 1 egg
  • 1 eggjarauður
  • 1 tsk vanilludropar

Aðferð

  1. Setjið allt saman í matvinnsluvél þar til allt hefur blandast vel saman
  2. Færið yfir í sprautu poka og sprautið fillingunni í tart skelina upp hálfa leið
  3. bakið á 180 C í 15-25 mín
  4. takið síðan út og látið kólna
  5. þegar skelin hefur kólnað er gott að tal
  6. takið síðan tartið varlega úr forminu þegar það hefur alveg kólnað

 

Hindberja sulta

  • 250 g hindber
  • 150 g sykur smá sítrónu safi

Aðferð

  1. Allt sett í pott og látið malla á vægum hita í 7-10 mínútur. Hrærið stöðugt
  2. Færið yfir í annað ílát og leyfið að kólna í u.þ.b 30 mín aaa
  3. Hellið síðan sultunni ofan á tartið og dreifið vel. kælið síðan í 30 mín

Vanillu rjómi

  • 125 g mjólk
  • vanilla
  • 7 g maísmjöl
  • 20 g sykur
  • 27 g eggjarauður
  • 10 g smjör
  • 200 g þeyttur rjómi

Aðferð

  1. Hrærið eggj­ar­auður, syk­ur og maísmjöl með písk þar til bland­an létt­ist í lit u.þ.b. 3 mín­út­ur.
  2. Hitið upp mjólk og vanillu sam­an í miðlungs potti þar til hann rétt svo síður.
  3. Hellið rjóm­an­um út í eggj­ar­auðurn­ar í smá­um skömmt­um og hrærið stöðugt svo að egg­in eld­ist ekki.
  4. Hellið síðan blönd­unni aft­ur yfir í pott­inn og hrærið þar til bland­an þyk­ist u.þ.b. 3-5 mín­út­ur.
  5. Takið síðan af hell­unni og hellið í gegn­um sigti ofan í skál, setjið smjörið síðan ofan í og hrærið þar til smjörið hef­ur bráðnað.
  6. Leggið plast­filmu á yf­ir­borðið og kælið í ís­skáp í 3-4 klukku­stund­ir.
  7. Þeytið rjómann þar til að hann er frek­ar stíf­ur og blandið var­lega við eggja­blöndu með sleikju.
  8. Færið rjóman yfir í sprautu poka með hringlaga stút og setjið til hliðar.

Samsetning

  1. Skerið hinber í helming og raðið meðfram kantinum
  2. Sprautið rjómanum í miðjuna í litla toppa.
  3. Kælið inn í ískáp í 30 mín og njótið!

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)