Gerir 4 stk
Hráefni
- 3 egg (ca 50 g eggjarauður, 100 g eggjahvítur)
- 120 gr. rjómi
- 45 gr. mjólk
- 190 gr. súkkulaði
- 15 gr. sykur
- smá salt
Aðferð
- Hrærið rjóma, mjólk, eggjarauðum í pott og færið síðan yfir á lágan hita. Hrærið stöðugt þar til blandan byrjar að þykkjast smá eða komin upp í 65-70°c. Takið af hitanum og hellið í gegnum sigti yfir súkkulaði og sjávar salt. Leyfið að standa í 5 mín.
- Hrærið síðan með töfrasprota og hellið í miðlungs skál.
- Þeytið eggjahvítur með sykri þar til þær halda forminu sínu rétt svo en ekki of stífþeytt.
- Hrærið eggjahvíturnar saman við í súkkulaðið í 3 skömmtum rosa varlega.
- Skammtið búðingnum síðan í 4 glös og kælið í amk 6 klst eða helst yfir nótt.
Skreyta
- Setjið u.þ.b hálfan pakka af Oreo í matvinnsluvél og hakkið saman þar til að öll kexin eru orðin að fínni mylsnu.
- Setjið smá af Oreo mylsnunni ofan á hvern búðing og skreytið síðan með allskonar hrekkjavöku nammi. Ég notaði gúmmí orma og bjó til litla súkkulaði legsteina úr rjómasúkkulaði og notaði til þess sílikon legsteina form.






