Hrekkja­vöku tart

Botn

  • 40 g möndl­umjöl
  • 140 g hveiti
  • 50 g flór­syk­ur
  • 12 g kakó
  • ½ tsk. salt
  • 113 g kalt smjör (skorið í litla bita)
  • 1 eggj­ar­auða
  • 3 tsk. vatn
  • ½ tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð

  1. Blandið sam­an í mat­vinnslu­vél möndl­umjöli, hveiti, flór­sykri, kakói og salti.
  2. Setjið smjörið svo út í með þur­refn­un­um blandið þar til deigið lík­ist áferð af sand.
  3. Blandið sam­an í u.þ.b. 1 mínútu eða þar til smjörið hef­ur brotnað niður í litla bita.
  4. Setjið síðan eggj­ar­auðuna, vatnið og vanillu­drop­ana út í og blandið þar til deigið hef­ur
  5. komið sam­an í kúlu.
  6. Hellið deig­inu út á bök­un­ar­papp­ír og pakkið því inn og setjið það inn í ís­skáp í
  7. a.m.k. eina klukku­stund.
  8. Takið síðan deigið út og setjið það á milli 2ja laga af bök­un­ar­papp­ír og fletjið það svo
  9. jafnt út.
  10. Takið svo ann­an papp­ír­inn í burtu og og leggið deigið ofan í formið.
  11. Losið síðan hinn papp­ír­inn í burtu og þrýstið deig­inu út í alla kanta og upp hliðarn­ar á
  12. form­inu.
  13. Ef það eru ein­hver göt í deig­inu er gott að taka deigið sem hang­ir af könt­un­um og fylla í
  14. öll göt­in.
  15. Setjið deigið í frysti í 10 mínútur og skerið síðan með fram könt­un­um á form­inu.
  16. Setjið álp­app­ír í formið og með fram deig­inu og upp kant­ana.
  17. Hitið ofn­inn í 180°C hita.
  18. Setjið inn í ofn og bakið í 10 mínútur og síðan takið álp­app­ír­inn í burtu og bakið í 10-15 mínútur án hans.
  19. Takið svo úr ofn­in­um og látið að kólna.

Kara­mella

  • 110 g púður­syk­ur
  • 110 g smjör
  • 120 g rjómi
  • ½ tsk. salt
  • Rauður mat­ar­lit­ur eft­ir smekk

Aðferð

  1. Setjið smjörið og púður­syk­ur­inn í meðal­stór­an pott. Hafið miðlungs hita á hell­unni og hrærið stöðugt í u.þ.b. 5 mín­út­ur  eða þar til smjörið og púður­syk­ur­inn eru búin að bland­ast vel sam­an.
  2. Hellið rjóm­an­um út í og hrærið yfir miðlungs hita í 3 mín­út­ur.
  3. Takið af hit­an­um og hellið í ílát sem þolir hita.
  4. Setjið ½ tsk. af salti og nokkra dropa af rauðum mat­ar­lit út í og hrærið sam­an.
  5. Leyfið blönd­unni síðan að kólna í 15 mín­út­ur og hellið svo í tart botn­inn og setjið inn í ís­skáp í um það bil 30 mín­út­ur.
  6. Á meðan er gott að byrja á súkkulaði ganache-inu.

Súkkulaði ganache

  • 200 g suðusúkkulaði
  • 200 g rjómi
  • 50 g smjör

Aðferð

  1. Hitið rjómann og smjörið sam­an þar til það kem­ur létt suða.
  2. Takið síðan af hit­an­um og bætið súkkulaðinu við og hrærið þar til súkkulaðið hef­ur bráðnað.
  3. Látið blönd­una kólna í 15 mínútur og hellið síðan yfir kara­mell­una.
  4. Leyfið svo tart­inu að kólna al­veg niður inn í ís­skáp í um það bil 1 ½ til 2 klukku­stund­ir.

Smjörkrem (val fyr­ir köngu­ló­ar­vef)

  • 50 g smjör við stofu­hita
  • 50 g flór­syk­ur
  • ½ tsk. vanillu­drop­ar
  • 1 tsk. mjólk

Aðferð og skreyt­ing

  1. Takið tartið úr form­inu.
  2. Þeytið sam­an smjör, flór­syk­ur, vanillu­dropa og mjólk þar til bland­an verður létt og ljós.
  3. Setjið síðan smjörkremið í sprautu­poka með litl­um hring­laga stút eða klippið lítið gat á
  4. end­ann.
  5. Búið svo til köngu­ló­ar munst­ur ofan á og setjið hrekkja­vöku nammi ofan á. Ég gerði
  6. köngu­lær úr bræddu súkkulaði og notaði súkkulaði nam­mi­kúl­ur fyr­ir lík­amann.
  7. Best er að taka tartið út 30 mínútur áður en það er borið fram.
  8. Gott að hafa rjóma til hliðar en tartið er líka ljúf­fengt án hans.
  9. Gleðilega Hrekkja­vöku.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)