Marengs botnar:
- 6 eggjahvítur
- 380 g sykur
- 1 tsk lyftiduft
- 100-200 g kornflex
Samsetning:
- 500 ml rjómi
- 100 g Síríus Suðusúkkulaði
- ca 300 g jarðarber skorin í bita
- ca 300 g bláber
Aðferðir:
Marengs:
- Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn saman í hrærivél í 5-8 mín þar til stífþeytt.
- Myljið kornflexið í minni bita með höndunum ofan í marengsinn ásamt lyftidufti og blandið saman með sleikju.
- Skammtið marengsinum jafnt á mill 2 bökunarplata með bökunarpappír. Dreifið vel í 2 skífur og bakið á 150 C í 50 mín. Slökkvið síðan á ofninum og leyfið marengsinum að kólna inn í ofninum í 2 klst eða yfir nótt
Samsetning:
- Bræðið suðusúkkukaðið og leggið til hliðar.
- Þeytið rjóman og skiptið honum í helming, hrærið súkkulaðinu við helminginn af rjómanum en skiljið smá eftir til að skreyta.
- Smyrjið súkkulaði rjómanum á einn af marengsinum, dreifið jarðaberjum og bláberjum yfir súkkulaði rjómann.
- Leggið hin marengsinn ofan á og smyrjið restina af rjómanum yfir. Dreifið síðan restina af berjunum ofaná og drizzlið restina af súkkulaðinu ofaná. Gott er að geyma tertuna inn í ísskáp í 2 klst + og berið síðan fram og njóta.





