Möndlubotnar
- 4 eggjahvítur
- 200 g möndlumjöl
- 200 g flórsykur
Krem
- 4 eggjaruður
- 1 dl sykur
- 1 dl vatn
- 150 g smjör við stofuhita
- 25 g kakó
- 20 g gott kaffi kallt
- ½ tsk salt
Súkkulaðihjúpur
- 300 g síríus suðusúkkulaði
Aðferðir:
Möndlubotnar
- Aðskilið eggjarauðurnar frá eggjahvítunum og leggjið rauðurnar til hlipar fyrir kremið.
- Stífþeytið eggjahvíturnar og blandið síðan flórsykrinum og möndlumjölinu við með sleikju þar til að
- Blandið möndlumjölinu og flórsykrinum varlega saman með sleikju.
- Mótið kökurnar með tveimur teskeiðum og setjið á bökunarplötu með smjörpappír. Mér finnst best að setja blönuna í sprautupoka með hringlaga stút eða að klippa gat á endan og að sprauta út deiginu á plöturnar.
- Bakið síðanná 180˚C í 10-12 mín
- Leyfið botnunum síðan og kólna á meðan þið gerið kremið
Krem
- Þeytið eggjaruðurnar í hrærivél þar til mjög léttar og ljósar.
- Gerið síðan sýrópið með því að hita saman sykur og varn í miðlungs/litlum potti. Sjóðið við miðlungs hita þar til að sýrópið virðist þykkara og að hitin mælist um 115-118˚C
- Haldið áfram að þeyta eggjahvíturnar á miklum hraða og hellið síðan sýrópinu meðfram kantinum af skálinni. Þeytið síðan blönuna þar til að hún kólnar alveg.
- Bætið smjörinu út í nokkrum skömmtum og hrærið vel á milli. Bætið síðan við saltinu, kakóinu og kaffinu og hrærið þar til allt hefur komið vel saman.
- Smirjið kreminu á möndubotnana og kælið inn í ískáp eða í fristi á meðan þið temprið súkkulaðið.
Súkkulaði hjúpur
- það er ekki nausenlegt að tempra súkkulaðið en ég mæli mjæg mikið með því. Það gerir súkkulaðið stökkar og heldur því frá því að bráðna við stofuhita.
- Byrjið á því að skera 100 g af súkkulaðinu mjög smátt og leggið til hliðar.
- Bræðið síðan 200 g af súkkulaðinu yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni. Passið að hræra stöðugt svo að súkkulaðið brenni ekki.
- Hitið súkkulaði upp í 48-50 C og bætið síðan fín saxaða súkkulaðinu út í og hrærið með sleikju eða skeið þar til að allt súkkulaðið hefur bráðnað og hefur kælst niður í 30-32 C.
- Ef að það eru enn smá bitar af súkkulaði efir er allt í lagi að hita það smá upp til að bræða þá en passið að hitinn fer ekki yfir 32 til að halda temprun.
- Dífið síðan krem hliðinni af sörunum í súkkulaðið og leyfið því að storkna.
- Gott er að geyma sörurnar inn í frysti en það er líka hægt að geyma þær inn í ísskáp.
- Njótið og gleðileg jól!:)





