lady fingers kex
- 6 egg
- 216 g sykur
- Smá klípa af salti
- 1 tsk vanilludropar
- 295 g hveiti
- flórsykur til að strá yfir
Aðferð:
- Hitið ofnin á 180 C
- Þeytið eggin, sykurinn, saltið og vanillu saman í hrærivél þar til létt og ljóst í u.þ.b 5-7 mín
- Hrærið síðan hveitinu varlega við með sleikju og færið síðan í sprautu poka með hringlaga stút
- Sprautið litlar lengjur út með deiginu á bökunar pappír og skráið vel af flórsykri ofan á með sigti
- Bakið í 8-12 mín eða þar til létt gull brúnir
- Takið úr ofninum og leifið að kólna
mascarpone fylling:
- 5 miðlungs egg
- 90g sykur (fyrir eggjarauðurnar)
- 30g sykur (fyrir eggjahvíturnar)
- 2-3 msk amaretto
- 1 tsk vanillu dropar eða paste
- 500g Mascarpone ostur
Aðferð:
- Þeitið saman eggjarauður og sykur saman þar til létt og ljóst og mest af sykrinum hefur leist upp, hrærið síðan ostinum, amaretto og vanillu við og setjið til hliðar.
- Þeytið eggjahvíturnar og sykurinn saman þar til stíf þeytt
- Takið 1/3 af eggjahvítunum ig blandið saman við eggjarauðurnar, takið síðan restina af eggjahvítunum í tveimur skömmtum og blandið varlega saman þar til allt hefur blandast vel saman. Varist þess að blanda ekki of mikið
- kaffi blanda:
- 600ml kallt sterkt kaffi
- 3 msk amaretto
Aðferð:
- Blandið kaffinu og amarettoinu í miðlungs skál og setjið til hlupar
Samsetning:
- Takið stórt ferkanntað og dífið lady fingers kexinu rétt svo ofan í kaffi blönduna og ráðið í botninn þar til allur botninn er þalin kexinu.
- Takið síðan helminginn af mascaropne fyllingunni og smirjið yfir
- Endurtakið svo með því að setja annað lag af kexinu díft ofan í kaffið og síðan restina af fyllingunni ofaná
- Sléttir svo vel á yfirborðinu og kælið inn í ísskáp hellst yfir nótt eða amk. 6-8 klst
- Stráið svo kakói yfir með sigrið og berið framm og njótið!





