Marengs
- 5 eggjahvítur
- 280 g sykur
- Flórsykur til að strá yfir
Aðferð:
- Byrjið á því að hita ofninn í 180°C og stillið á blástur. Setjið bökunarpappír í 23×33 cm bökunarplötu og brjótið inn hornin svo marengsinn komist vel fyrir.
- Setjið eggjahvíturnar í stóra skál og þeytið með hrærivél þar til þær eru næstum stífar. Á meðan hrærivélin er í gangi bætið sykrinum út í, einni matskeið í einu. Hrærið marengsinn áfram þar til hann er stífþeyttur. Hellið marengsinum ofan í formið og fyllið út í alla kanta og bakið í 15 mínútur.
- Á meðan marengsinn er að bakast setjið bökunarpappír á borðið og dreifið flórsykri yfir hann. Það veldur því að marengsinn festist ekki við pappírinn þegar við losum hann.
- Takið marengsinn úr ofninum og hvolfið honum á bökunarpappírinn þannig að hann sé á hvolfi. Takið bökunarpappírinn sem hann bakaðist á varlega af og látið kólna í 20-30 mínútur.
Rjómafylling:
- 250 g rjómi
- 50 g brætt súkkulaði
- 90 g bláber
- 100 g jarðarber
- Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Setjið til hliðar og látið kólna örlítið.
- Þeytið rjómann þar til hann er léttþeyttur. Hellið súkkulaðinu út í rjómann og hrærið aftur þar til hann er frekar stífur.
- Skerið jarðarberin í þunnar sneiðar og bláberin í tvennt. Þegar marengsbotninn hefur kólnað hæfilega er tímabært að setja rjómann á botninn og dreifið honum einnig í alla kanta. Dreifið berjunum jafnt yfir rjómann. Rúllið upp marengsinum í þétta rúllu, það er gott að nota bökunarpappírinn til að hjálpa þér að rúlla honum upp. Setjið rúlluna á disk og skreytið með rjóma, berjum og flórsykri ef þið viljið. Kælið rúlluna aðeins þannig að rjóminn taki sig og njótið vel.





