Hráefni:
- 500 g hveiti
- 1 ½ tsk salt
- 35 g maísmjöl
- 1/2 tsk matarsódi
- 320 g brúnað smjör
- 280g púðursykur
- 115g sykur
- 2 egg
- 3 eggjarauður
- 1 poki Nóa Súkkulaði kringlur (160 g)
- 200g Nóa Síríus Suðusúkkulaði
Aðferð:
- Setjið 200 g af smjörinu í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál. Bætið við 120 g af smjöri út í og leyfið því að bráðna og síðan kólna í u.þ.b. 10 mín.
- Takið lúku af súkkulaði kringlunum og leggið til hliðar til að skreyta síðar. Saxið niður restina af súkkulaði kringlunum og suðusúkkulaðinu í minni bita og leggið til hliðar.
- Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda, maísmjöli og salti og setjið til hliðar.
- Hrærið sykrunum saman við smjörið með písk og síðan bæta við eggjum og vanilludropum.
- Hrærið síðan hveitiblöndunni út í smjörblönduna með sleikju, bætið síðan súkkulaði Kringlu og súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skiptið deiginu í 100 gr. Kúlur og kælið í a.m.k. 30-60 mín eða helst yfir nótt.
- Hitið ofninn á 190 ° C og setjið síðan kúlurnar á bökunarplötu með nægu millibili því þær dreifast út við bakstur og bakið í 14 mínútur.
- Leggið síðan eina súkkulaði kringlu ofan á hverja köku og stráið smá sjávarsalti ofan á og njótið með ísköldu mjólkurglasi.





