Haftakex Botn:
- 1 pakki af Göteborgs kornmo hafrakex (225g)
- 120 g bráðið smjör
Súkkulaði ganache:
- 400g Nóa Síríus suðusúkkulaði
- 400g rjómi
- 100g smjör
Sykurpúða krem:
- 150 g sykur
- 3 eggjahvítur
- 20 g vatn
Aðferðir:
Hafrakex botn:
- Myljið Göteborgs hafrakex í matvinnsluvél þar til allt er mulið fínt.
- Hellið smjörinu yfir og hrærið þar til allt kemur lauslega saman.
- Hellið blöndunni í stórt tart form með lausum botni. Þjappið vel í botninn og upp allar hliðar. Kælið síðan tart skelina og gerið súkkulaði ganache.
Súkkulaði ganache:
- Hitið rjómann og smjörið saman þar til það kemur upp létt suða.
- Takið þá af hitanum og bætið súkkulaðinu við og hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað.
- Hellið súkkulaði blöndunni í hafrabotninn og leyfið svo tartinu að kólna alveg niður inn í ísskáp í a.m.k. 1 ½ til 2 klukkustundir.
Sykurpúða krem:
- Setjið eggjahvíturnar, sykurinn og vatnið í stál skál. Leggjið yfir vatnsbað á miðlugs hita og hrærið stöðugt með písk þar til allur sykurinn er búin að leisast upp. Þið finnið það með því að nudda blöndunni á milli tveggja fingra og ef að þið finnið ekki fyrir sykur kristöllunum þá má taka blönduna af hitanum.
- Hærið síðan í hrærivél eða með handþeytara þar til létt og stíft í u.þ.b 7 mínútur.
- Hellið síðan kreminu ofaná tartið og dreifið því vel yfir yfirborðið.
- Brennið síðan með brennara þar til sykurpúða kremið virðist gullið brúnt.
- Berið helst fram samdægurs og kremið er gert og njótið!





