Hráefni:
- 170 g smjör
- 200 g púðursykur
- 50 g sykur
- 1 egg
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vanillupaste/dropar
- 220 g hveiti
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 150 g Siríus Hvítir súkkulaði dropar
- 100 g trönuber
Aðferð:
- Setjið smjörið í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál og leyfið að kólna í u.þ.b. 10 mín.
- Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda og salt og setjið til hliðar.
- Hrærið sykrunum saman við smjörið með písk og bætið síðan við egginu, eggjarauðunni og vanilludropum.
- Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna með sleikju. Bætið síðan trönuberjunum og hvítu súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skammtið deiginu í kúlur með lítilli eða miðlungs ísskeið og leggjið á bökunar pappír og bakið á 180 ° C blástur í 8-12 mínútur.
- Leyfið síðan aðeins að kólna og njótið!





