Magdalenur með Sítrónuglassúr

Gefur um 16 Magdalenu

Hráefni

  • 100 g flórsykur
  • Fínrifinn börkur af 1 sítrónu
  • 1 tsk vanilludropar eða vanillupaste
  • 2 stór egg (120 g)
  • 100 g hveiti
  • 1 tsk lyftiduft 
  • ¼ tsk salt
  • 100 g smjör brætt

Aðferð

  1. Setjið flórsykur, sítrónubörk, vanillu og egg í skál. Hrærið saman þar til blandan er slétt.
  2. Bætið síðan við hveiti, lyftidufti og salti og hrærið rétt þar til deigið hefur aðeins komið saman.
  3. Hellið brædda smjörinu út í og hrærið þar til deigið verður silkimjúkt og jafnt.
  4. Leggið síðan plastfilmu yfir yfirborð deigsins og kælið í að minnsta kosti 1–2 klukkustundir. Best er að láta það standa í ísskáp yfir nótt. Kælingin hjálpar Magdalenunum að fá einkennandi bunguna á miðjunni.
  5. Þegar deigið hefur fengið að kólna, hitið ofninn í 240°C.
  6. Smyrjið Magdalenuformið ef þarf með bræddu smjöri. Setjið deigið í sprautupoka eða notið tvær teskeiðar til að fylla formin um það bil ¾.
  7. Setjið kökurnar inn í ofninn og lækkið hitann strax í 180°C. Bakið í 10–14 mínútur, eða þar til þær eru orðnar ljós-gullbrúnar á köntunum.
  8. Látið Magdalenurnar kólna í nokkrar mínútur áður en þær eru teknar úr forminu og færðar á kæligrind.


Sítrónuglassúr

  • 150 g flórsykur
  • Safi úr 1/2 – 1 sítrónu

Aðferð

  1. Hrærið flórsykur og sítrónusafa saman þar til myndast þunnur, fljótandi glassúr. Bætið við meiri sítrónusafa ef glassúrinn virðist of þykkur.
  2. Dýfið hverri magdalenu í glassúrinn, leggið þær síðan á kæligrind og látið glassúrinn þorna þar til hann myndar fína, glansandi húð á yfirborðinu.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)