Hráefni:
- 505 g hveiti
- 1 ½ tsk salt
- 35 g maísmjöl
- 1/2 tsk matarsódi
- 320 g brúnað smjör
- 285g púðursykur
- 115g sykur
- 2 egg
- 3 eggjarauður
- 450g súkkulaði
Aðferð:
- Setjið 200 g af smjörinu í pott og eldið yfir miðjugs hita. Hrærið stöðugt þar til að smjörið brúnast og það kemur karamellu ilmur af smjörinu. Takið það af hitanum og setjið í stóra skál. Bætið við 120 g af smjöri út í og leyfið því að bráðna og síðan kólna í uþb 10 mín.
- Í annarri skál blandið saman hveiti, matarsóda, maísmjöli og salti og setjið til hliðar.
- Hrærið sykrana saman við smjörið með písk og síðan eggin og vanilludropa
- Hrærið síðan hveiti blöndunni út í smjör blönduna með sleikju, bætið síðan súkkulaðibitum út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Skammtið deiginu í 100 gr. Kúlur og kælið í 30-60 mín eða helst yfir nótt. Mér finnst oft gott að raða kökudeigskúlunum síðan í poka og geyma inn í frysti og kippt út nokkrum kúlum þegar mér langar í ný bakaðar súkkulaðibitakökur.
- Hitið ofninn á 190 ° C og setjið síðan kúlurnar á bökunarplötu með nóg bil á milli því þær dreifast út við bakstur og bakið í 14 mín
- Stráið smá sjávarsalti ofan á og njótið með ísköldu mjólkurglasi.





