Pasteis de Nata (Portúgalskar eggjabökur)

Pastel de Nata er eitt frægasta bakkelsi Portúgals og það er ekki erfitt að skilja af hverju. Þessar litlu eggjabökur eru gerðar úr stökku, smjörkenndu smjördeigi sem umlykur silkimjúka fyllingu með mildum vanillu- og kanilkeim. Þær eru bestar nýbakaðar, örlítið volgar og með smá flórsykri og kanil yfir. Þær eru einfaldlega ómótstæðilegar.

Gerir 24 stk

Smjördeig:

Deig

  • 200 ml vatn
  • 330 g hveiti
  • ¼ tsk salt

Smjörlag

  • 250 g mjúkt smjör

Aðferð:

  1. Setjið vatn, hveiti og salt í hrærivélarskál og hnoðið þar til deigið er slétt.
  2. Pakkið deiginu inn eða leggið rakt viskastykki yfir og látið það hvíla í 15–30 mínútur.
  3. Fletjið deigið út í mjög þunnan ferning.
  4. Smyrjið ⅓ af smjörinu jafnt yfir deigið og brjótið það saman í þrennt (3-fold).
  5. Snúið deiginu þannig að opið snúi að ykkur og fletjið það aftur út í sömu átt og það var brotið til að gera það breiðara.
  6. Smyrjið ⅔ af smjörinu yfir deigið og endurtakið þríbrotið, nú í hina áttina.
  7. Fletjið deigið enn á ný út í mjög þunnt lag, smyrjið afganginum af smjörinu yfir og rúllið deiginu þétt upp.
  8. Skerið rúlluna í tvo jafna hluta, pakkið hvorum hluta inn í plastfilmu og kælið í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða yfir nótt.

 

Fylling:

  • 40 g hveiti
  • 50 ml mjólk
  • 250 ml mjólk
  • 165 ml vatn
  • 240 g sykur
  • 2–3 kanilstangir
  • Smá rifinn sítrónubörkur (má sleppa)
  • 4 eggjarauður

Aðferð:

  1. Hrærið saman hveiti og 50 ml af mjólkinni þar til kekkjalaust.
  2. Hitið 250 ml af mjólk að suðu og hellið henni í mjórri bunu út í hveitiblönduna á meðan hrært er stöðugt.
  3. Setjið vatn, sykur, kanilstangir og sítrónubörk í pott og hitið að suðu.
  4. Hellið sykursírópinu í mjórri bunu út í mjólkurblönduna á meðan hrært er vel.
  5. Látið blönduna kólna í um 10–15 mínútur, eða þar til hún er volg en ekki heit.
  6. Hrærið eggjarauðunum saman við.
  7. Sigtið blönduna yfir í könnu eða skál, leggið plastfilmu beint ofan á yfirborðið og geymið þar til deigið er tilbúið.

Samsetning

  1. Smyrjið Pastel de Nata-form eða bollakökuform vel með smjöri.
  2. Takið aðra deigrúlluna úr kæli og skerið hana í 12 jafna bita.
  3. Setjið einn bita í hvert form og látið standa í um 15 mínútur svo deigið mýkist örlítið.
  4. Dýfið þumalfingrunum í kalt vatn og þrýstið deiginu upp með hliðum formsins þannig að botninn og hliðarnar þekjist jafnt.
  5. Fyllið formin næstum upp að brún með fyllingunni.
  6. Bakið við hæsta hita sem ofninn nær. Hjá mér eru það 275°C með blæstri í 8–14 mínútur. Bökunartíminn getur verið breytilegur eftir ofnum, svo fylgist vel með.
  7. Kökunar eru tilbúnar þegar fyllingin hefur fengið nokkra dökka bletti á yfirborðinu og smjördeigið er orðið djúpt gyllt og stökkt.
  8. Látið þær kólna í 10–15 mínútur áður en þær eru teknar varlega úr formunum.

Borið fram

Pastel de Nata eru bestar bornar fram volgar, gjarnan með örlitlum kanil og flórsykri stráðum yfir.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)