Rice Krispies kaka
- 150 g Nóa Siríus suðusúkkulaði
- 500 g sýróp
- 300 – 500 g Rice Krispies
- Saltkaramellu sósa:
- 110 g sykur
- 60 g vatn
- 120 g rjómi
- Klípa af salti
Samsetning:
- 250 g þeyttur rjómi
- Smá kropp
- Jarðaber
Aðferðir:
Rice Krispies kaka:
- Bræðið saman súkkulaðinu og sýrópinu þar til að það eru engir bitar af súkkulaði eftir og blandan er meira fljótandi.
- Takið síðan af hitanum of hrærið Rice Krispies við þar til að það sést ekkert súkkulaði sýróp í botninum. Hellið síðan í hringlaga kökuform með bökunar pappír í botninum.
- Þjappið blöndunni vel í formið og kælið síðan inn í ísskáp.
Saltkaramellu sósa:
- Setjið saman sykur og vatn í miðlungs pott og bræðið saman yfir lágum hita. Ekki hræra neitt í blöndunni en vaktið hana rosa vel.
- Hægt og rólega á blandan að byrja að fá smá dekkri lit, lækkið enn meira í hitanum og um leið og karamellan verður gullinbrún þá á að hella rjóman útí í þremur skömmtum, og hrærið vel á milli. Varist að karamellan frussist smá upp og gæti komið smá gufuský.
- Bætið síðan við klípu af sjávarsalti og sjóðið í auka 3 mín.
- Hellið síðan í eldfast mót og leyfið að kólna við stofu hita í ca 1-2 klst.
Samsetning:
- Þeytið rjóma og setjið til hliðar.
- Losið Rice Krispies kökuna úr forminu og leggið á kökudisk. Dreyfið saltkaramellu sósunni yfir kökuna og smyrjið síðan rjómanum ofan á. Dreifið smá kroppi yfir og nokkur jarðarber til skrauts.





