Súkkulaðibitakökur með vanillu ís

Þessi eftirréttur er alveg búin að springa upp á Internetinu undanfarna daga svo að ég þurfti að prófa. Þetta var svoo gott að ég er búin að fá mér þetta nánast hvert einasta kvöld síðan að ég bakaði þetta fyrst. Ísin kælir kökuna alveg nóg niður svo að súkkulaðið er en bráðið og áferðin á þessu öllu saman er bara himneskt. Það er alveg magnað hvernig eithvað svona gott er líka ótrúlega einfalt að gera.

Uppskriftin gefur um 12–13 kökur

Hráefni:

  • 112 g smjör
  • 190 g hveiti
  • 1/4 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. flögusalt
  • 110 g sykur
  • 110 g ljós púðursykur
  • 1 stórt egg
  • 2 eggjarauður
  • ½ tsk. vanilludropar
  • 200 g dökkt súkkulaði, gróft saxað

Samsetning:

  • Vanillu ís
  • Flögu salt

Aðferð:

  1. Brúnið smjörið með því að setjið smjörið í pott og hitia við meðalháan hita þar til það bráðnar, freyðir og verður svo fallega gullinbrúnt. Takið af hitanum og hellið í skál og látið kólna í um 10 mínútur.
  2. Í minni skál setjið hveiti, lyftiduft, matarsóda og salt í skál og blandið saman og leggjið til hliðar.
  3. Blandið sykrinum og púðursykrinum við smjörið með písk.
  4. Bætið síðan egginu og eggjarauðunni saman við ásamt vanilludropunum. Þeytið þar til blandan er vel samlöguð.
  5. Setjið þurrefnin út í og blandið með sleikju þar til deigið hefur rétt náð að blandast saman.
  6. Blandið síðan söxuðu súkkulaði saman við þar til það dreifist jafnt um deigið.
  7. Skammtið deiginu í 85-90 gramma kúlur og kælið inn í ískáp í amk 30 mín.
  8. Hitið ofninn í 190°C með blæstri og legjið kökurnar á bökunar plötu með bökunarpappír og bakið í 10-12 eða þar til kantarnir eru orðnir gylltir en miðjan ennþá mjúk.
  9. Á meðan kökurnar bakast er best að skamta vanillu ís í skálar og þegar kökurnar eru komnar úr ofninum að lifta þeim varlega upp með spaða og leggja ofan á ís kúluna.
  10. Síðan á bara að srá smá sjáfarsalti ofaná og njóta.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)