Súkkukaði smákökur með sykurpúðum

Magn: 12–14 kökur

Hráefni:

  • 125 g dökkt súkkulaði, helst 70% kakó
  • 150 g hveiti
  • 30 g kakó
  • 1 tsk matarsódi
  • ½ tsk salt
  • 125 g mjúkt smjör við stofuhita
  • 75 g púðursykur
  • 50 g sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 stórt kalt egg
  • 200 g súkkulaðidropar eða saxað súkkulaði
  • 2 pokar Sweeto hjarta sykurpúðar

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C blástur.
  2. Bræðið dökka súkkulaðið í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Leyfið því að kólna örlítið á meðan þið undirbúið deigið.
  3. Skerið Sweeto sykurpúða hjörtun í minni bita. Það er sniðugt að skilja nokkur hjörtu eftir og skera þau aðeins í tvennt, þá henta þau fullkomlega til að setja ofan á kökurnar seinna. Leggjið síðan til hliðar.
  4. Blandið saman hveiti, kakói, matarsóda og salti í skál.
  5. Þeytið saman mjúkt smjör, púðursykur og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið brædda súkkulaðinu saman við og blandið vel.
  6. Bætið vanilludropum og köldu eggi út í og blandið rétt þar til blandan virðist aðeins léttari.
  7. Blandið þurrefnunum saman við og hrærið að lokum súkkulaðibitunum og sykurpúða bitunum saman við.
  8. Skiptið deiginu í 12–14 í kúlur með skeið. Setjið á bökunarpappír með góðu bili á milli og bakið í 7 mínútur.
  9. Takið kökurnar úr ofninum og setjið eitt sykurpúða hjarta sem við skárum í helming ofan á hverja köku. Þrýstið því mjög létt niður þannig að það festist.
  10. Setjið aftur inn í ofninn og bakið í 3–4 mínútur til viðbótar, eða þar til kökurnar eru bakaðar á köntunum en enn mjúkar í miðjunni.
  11. Leyfið kökunum að kólna á bökunarplötunni í nokkrar mínútur og njótið síðan með ísköldu mjólkurglasi.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)