Mjúkar, smjörkenndar smákökur með appelsínu og súkkulaði – innblásnar af dönskum smjörkökum.
Uppskriftin gefur 2 lengjur / ca. 36–44 kökur.
Ljóst deig
- 150 g smjör, við stofuhita
- 100 g sykur
- 1 eggjarauða
- 1 tsk vanilludropar
- Fínn Börkur af 1 appelsínu
- 220 g hveiti
- Smá klípa salt
Dökkt deig
- ½ af ljósu deiginu
- 1½ msk kakó
- 1 tsk mjólk (ef þarf, til að mýkja deigið)
Samsetning
- 1 eggjahvíta (til að festa deigin saman)
Aðferð
1. Búa til deig
- Þeytið smjör, sykur, salt og appelsínubörk þar til blandan er létt og loftkennd (2–3 mínútur).
- Bætið eggjarauðu og vanillu út í og hrærið vel.
- Hnoðið hveitinu varlega saman við þar til að deigið hefur komið saman.
- Skiptið deiginu í tvo jafna hluta.
- Hnoðið kakóið í annan hlutann. Ef deigið verður of stíft, bætið 1 tsk mjólk út í.
2. Fletja út og setja saman
- Fletjið bæði ljósa og dökka deigið út í jafnþykkar ferhyrndar plötur á milli 2 laga af bökunarpappír eða í plastfilmu. Kælið í ísskáp í að minnsta kosti 30 mínútur.
- Penslið eggjahvítu á eitt deigið og leggið hitt deigið ofan á. Skerið síðan í tvennt og staflið öðrum helmingnum ofan á hinn, með eggjahvítu á milli. Þá eru komin 4 lög af deigi sem mynda ljósar og dökkar rendur.
(Hægt er að finna myndband á TikTok og Instagram á @annamaribakar til að sjá hvernig deigið á að líta út.) - Setjið deigið aftur í kæli í ca. 15–20 mínútur svo það harðni aðeins.
3. Skera lengjur og mynda taflmynstur
- Skerið deigið í jafn breiðar lengjur og raðið þeim saman til skiptis (ljóst/dökkt) til að mynda taflmynstur.
- Penslið örlítið af eggjahvítu milli lengjanna til að festa þær saman.
- Mótið 2 lengjur og kælið í 1 klukkustund eða yfir nótt.
4. Skera og baka
- Hitið ofn í 170°C blástur.
- Skerið lengjurnar í sneiðar og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
- Bakið í 8–12 mínútur, þar til kökurnar eru rétt farnar að brúnast á köntunum. Varist að baka þær of lengi – þær eiga að vera ljósar og mjúkar.





