Geymsla: 2–3 dagar við stofuhita (lengur í kæli)
Marsípanbotnar
Hráefni
- 200 g marsípan
- Smá flórsykur
Leiðbeiningar
- Stráið flórsykri á vinnuborðið og rúllið út marsipanið í ca 3–4 mm þykkt.
- Skerið út hringi með smákökuformi (5–6 cm).
- Setjið á bökunarplötu með pappír.
- Bakið við 180°C í 4-5 mínútur, bara þar til yfirborðið þornar örlítið. Látið kólna alveg.
Marengsfylling (ítalskur marengs)
Hráefni
- 150 g eggjahvítur (ca. 5 egg)
- 300 g sykur
- 100 ml vatn
- 1 tsk vanillupaste eða fræ úr 1 vanillustöng
- ½ tsk edik eða 1 tsk sítrónusafi
Leiðbeiningar
- Setjið sykur og vatn í pott og hitaðu upp í 118–120°C.
- Á meðan: þeytið eggjahvítur með ediki/sítrónu og vanillu í hrærivél þar til stífþeytt.
- Helltu heita sykursírópinu varlega í marengsinn meðframm kanntinum af skálinni með þeytaran á meðalhraða.
- Þeyttu í 8–10 mínútur þar til marengsinn er stífur og glansandi og setjið síðan í sprautupoka með stórum hringlaga stút.
Samsetning
- Sprautið háan topp af marengs á hvern marsípanbotn.
- Láttu standa í 10–15 mínútur svo yfirborð þorni örlítið.
Súkkulaðihjúpur
Hráefni
- 300–400 g Siríus Suðusúkkulaði súkkulaði
- Kókosmjöl eða
Leiðbeiningar
- Temperaðu súkkulaðið og dýfið flødebollunum á hvolf í súkkulaðið.
- Láttu restina af súkkulaðinu leka af og settu á disk eða á bakka.
- Láttu súkkulaðið harna við stofuhita.





