Klassískar Vatnsdeigsbollur

12 stk. miðlungs stórar bollur

Vatnsdeig

  • 240 ml vatn
  • 110 g smjör
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 tsk. sykur
  • 120 g hveiti
  • 3-4 egg

Aðferð:

  • Setjið vatn, smjör, salt og syk­ur sam­an í pott og hitið sam­an á miðlungs hita þar til smjörið hef­ur bráðnað og bland­an er rétt svo far­in að sjóða.
  • Hellið hveit­inu út í og hrærið stöðugt yfir hit­an­um þar til það allt helst vel sam­an í kúlu í u.þ.b. 2-3 mín­út­ur.
  • Takið af hit­an­um og setjið deigið í stóra skál og látið kólna í um það bil 3-5 mín­út­ur.
  • Hrærið saman eggin í annarri skál og bætið þeim við deigið í litlum skömmtum og hrærið vel á milli með sleikju eða í hrærivél.
  • Áferðin á deig­inu á að vera þannig að það leki hægt og svo­lítið erfiðlega af sleikj­unni á nokkr­um sek­únd­um. Deigið á að halda nokk­urn veg­inn sömu lög­un eft­ir að það er sett á plöt­una en ekki leka út og verða flatt.
  • Notið sprautu­poka eða skeiðar til að mynda boll­ur á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  • Bakið síðan boll­urn­ar á 190°C í 30- 35 mín­út­ur.
  • Leyfið boll­un­um síðan að kólna á plöt­unni.

Súkkulaði glassúr

  • 150 g flórsykur
  • 2 msk kakó
  • 1 msk bráðið smjör
  • 1/4 tsk salt
  • 4 msk mjólk

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í skál með písk. Hægt er að bæta við meiri mjólk ef að ykkur finnst glassúrinn vera og þykkur.


Samsetning

  • 500 g rjómi
  • jarðaberja sulta

Aðferð:

  1. Skerið bollurnar í helming og fyllið botninn með jarðarberjasultu og þeyttum rjóma.
  2. Svo takið bara toppinn af bollunni og dífið ofan í súkkulaði glassúrinn og leggið hann ofan á.
  3. Berið fram, njótið og gleðilegan bolludag.

Hæ! Ég heiti Anna Marín, ég er 22 ára ástríðubakari.  Ég hef verið að að baka alveg siðan ég man eftir mér.  Vonandi getið þið notið þessara gómsætra uppskrifta.

Nýlegar uppskriftir

Fréttabréf / uppskriftir

Fylltu út nafn og netfangið þitt hér að neðan til að fá nýjustu uppskriftir ásamt fróðleik og fréttum c.a. 1x í mánuði :)